fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Hann talar um fjárfestingarstefnuna. Þegar við unnum hana á síðasta kjörtímabili lögðum við mikið á okkur og vönduðum okkur mikið. Þegar við vorum búin að setja saman stefnuna, bæði viðfangsefnin og hvernig átti að fjármagna þau, sögðum við samt sem áður: Við ætlum að passa upp á ríkisfjármálin. Við ætlum ekki að fara að stofna til skulda til að fara út í þessi verkefni. Nú hefur komið í ljós að fjárfestingaráætlunin var fullkomlega fjármögnuð. Ef við horfum til loka ársins 2015 kemur það í ljós. Við vildum líka nýta slakann í hagkerfinu til að fara út í þessar fjárfestingar. Það er ekki bara hallærisleg pólitík að slá fjárfestingarstefnuna af heldur sýnist mér hún beinlínis skaðleg. Núna er spenna, núna getum við ekki ráðist í þessar fjárfestingar og verðum sjálfsagt um langa hríð enn á milli Grikklands og Mexíkó í fjárfestingum í (Forseti hringir.) heilbrigðiskerfinu. Ég vil spyrja hv. þingmann um skoðun hans á þessu.