145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[13:19]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Fyrst aðeins um fyrra andsvarið, þetta með að fjárfestingaráætlunin hefði verið að fullu fjármögnuð, já, það kom einmitt í ljós eitt ótrúlegt andartak í atkvæðagreiðslu í þinginu þegar peningarnir komu inn, arðgreiðslur frá bankanum, og runnu nánast umyrðalaust og gagnrýnislaust til hinnar ótrúlegu aðgerðar, skuldaniðurfellingar ríkisstjórnarinnar. Allur peningurinn rann þangað í fullkomlega ósjálfbæra aðgerð sem er að mínu viti bara bruðl.

Þó að ég sé áhugamaður um skattalækkanir og vilji helst þjóðfélag sem íþyngir ekki þegnum sínum of mikið upplifi ég það ekki þannig að ljósið við endann á göngunum eftir hinar miklu þrengingar í kjölfar hrunsins ætti að birtast í formi skattalækkana. Þegar það eru verulegar kjarabætur á vinnumarkaði og mikill uppgangur í atvinnulífinu eru (Forseti hringir.) skattalækkanirnar illa tímasettar. Þörfin á þessum peningum til að mæta uppsafnaðri fjárþörf í rekstri fjölmargra mikilvægra stofnana er augljósari og henni hefði þurft að mæta fyrst.