fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Það er rétt, það kemur fram í fjárlagafrumvarpinu, stefnur og horfur í ýmsum málum. Það er bara allt annað mál, allt annar hlutur. Menn geta lýst stefnu og horfum í einstökum málum, eins og hv. þingmaður nefndi, með ljósleiðaravæðingu o.fl. sem er bara fínasta mál. En það er ekkert plan, engin áætlun í gangi. Sama er með vegaframkvæmdir og hafnarframkvæmdir. Það er vegstubbur hér og bryggjukantur þar án þess að nokkurt heildarplan sé um hvernig eigi að byggja upp vegakerfi, hafnakerfi eða flugmannvirki í landinu. Það heitir samgönguáætlun. Eftir henni þarf að vinna því að þar er það faglega gert af hálfu þeirra sem með málin fara utan þings, að reyna að skipuleggja með bestum hætti þannig að einhver samfella verði í framkvæmdum frá ári til árs. Þannig byggjast upp samgöngumálin og samgöngumannvirki eins og á að gera. Ekki að það sé tilviljunum háð, hverjir sitja í fjárlaganefnd hverju sinni. Það gengur bara ekki upp. Það er vond stjórnsýsla og sóun á almannafé.
Varðandi Þróunarsamvinnustofnun er það svo einfalt að Ísland er skuldbundið til að leggja 0,7% af vergum þjóðartekjum til þróunaraðstoðar. Það höfum við ekki gert. Aldrei. En við viljum nálgast það. Þingið er búið að segja það. Við viljum gera það. Við ætlum að ná þessu marki innan tiltekins tíma. 0,42% á næsta ári var samþykkt á Alþingi. Ef ég man rétt átti að fara í 0,42 og 0,7% 2019 og 2020 samkvæmt áætluninni. Frá þessu er horfið, algerlega. Þessi ályktun er hunsuð og það er reynt að skilgreina upp á nýtt hvað sé þróunaraðstoð. Það liggur algerlega fyrir. Það er viðurkennd alþjóðleg skilgreining á því hvað þróunaraðstoð er. Menn geta ekki hent inn í það bara einhverjum verkefnum sem þá langar til og hækkað þar með einhverja prósentutölu. Á því er þessi ríkisstjórn að heykjast (Forseti hringir.) eins og svo mörgu öðru.