145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[14:43]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka svarið. Ég er sammála hv. þingmanni að stefnumótunina vantar einmitt. Þó að peningar séu settir í flugvallarmál og hafnargerð og því um líkt er það einskiptisaðgerð að því er virðist og ekki bein stefnumótun sett í þá liði. Það er sem sagt ómögulegt að spá fyrir um hvað gerist í næstu fjárlögum miðað við hvað er að gerast núna.

Hvað varðar Þróunarsamvinnustofnun og styrki til þróunarstarfs skilst mér að aðstoð til flóttamanna fyrstu eitt, tvö árin teljist sem þróunarstarf. Það var það sem ég hjó aðeins eftir og gæti verið misskilningurinn sem ég heyrði upprunalega. Ef hægt væri að skerpa aðeins á því til að hafa það á hreinu væri það vel þegið.