fjárlög 2016.
Forseti. Við ræðum fjárlög fyrir árið 2016 og hér stendur yfir 2. umr. málsins og hefur staðið yfir um nokkra hríð.
Mig langar í ræðu minni að dvelja við nokkur efnisatriði úr breytingartillögum okkar í minni hlutanum en líka nokkur mál sem hafa verið ofarlega í pólitísku umræðunni undanfarna daga og undanfarnar vikur, þau pólitísku ágreinings- og álitamál sem eru helst í umræðunni þessa dagana sem eru staða aldraðra og öryrkja, Landspítala – háskólasjúkrahúss og Ríkisútvarpsins.
Mig langar þó að byrja þessa ræðu á að fjalla stuttlega um pólitíska stöðu málsins því að segja má að fjárlagafrumvarp hvers tíma sé stærsta pólitíska frumvarp hvers þings og stærsta pólitíska plagg hverrar ríkisstjórnar. Hefur stundum verið sagt að ríkisstjórn standi og falli með fjárlagafrumvarpi sínu því að þar komi fram hinar raunverulegu áherslur hvers tíma.
Nú er það svo að í þessu fjárlagafrumvarpi endurspeglast ekki bara pólitískar áherslur heldur ekki síður áherslur að því er varðar verklag og vinnubrögð og af þeim sökum langar mig, áður en ég ræði efnislega það sem frumvarpið hefur að geyma og þær breytingartillögur sem minni hlutinn hefur sameinast um, að drepa lauslega á lærdómnum sem Alþingi ætlaði sér að draga með þingsályktun um viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 28. september 2010. Þar samþykktum við öll 63 sem þá vorum þingmenn á Alþingi Íslendinga og höfðum umboð til þess frá kjósendum, þingsályktun um viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2010. Um var að ræða niðurstöðu Alþingis að því er varðaði stærstu efnahagslegu og pólitísku áföll sem Ísland hefur gengið í gegnum á lýðveldistímanum. Rannsóknarnefnd Alþingis skilaði margra binda skýrslu um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða en Alþingi lagði mikið upp úr því vegna þess að á þessum tímum vorum við sem betur fer mörg þar stödd í okkar pólitísku tilveru en ekki síður sem þjóð að vilja líta inn á við og draga lærdóm af því sem á undan var gengið og gera betur.
Í þingsályktuninni kemur fram að mikilvægt sé að Alþingi verji og styrki sjálfstæði sitt og grundvallarhlutverk. Það er eitt af því sem kemur fram í henni. Þar kemur líka fram að taka verði gagnrýni á íslenska stjórnmálamenningu alvarlega og lögð er áhersla á að af henni verði dreginn lærdómur. Loks ályktar Alþingi að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellisdómur yfir stjórnvöldum, stjórnmálamönnum og stjórnsýslu, verklagi og skorti á formfestu. Alþingi ályktar að mikilvægt sé að allir horfi gagnrýnum augum á eigin verk og nýti tækifærið sem skýrslan gefur til að bæta samfélagið.
Forseti. Ég er sannfærð um að þegar við sem þá sátum á Alþingi greiddum atkvæði með þessu gerðum við það af því að við vildum af fullri einlægni breyta stjórnmálamenningu og áherslum á Íslandi hvað þetta varðaði. Við vildum styrkja hlutverk Alþingis og við vildum bæta verklag. Við vildum auka formfestu og við vildum horfa gagnrýnum augum á eigin verk.
Það eru fimm ár síðan Alþingi samþykkti þessa þingsályktun. Af hverju er ég að fara yfir hana nú? Það er vegna þess hversu æpandi sú staðreynd er að núverandi ríkisstjórn hefur í stórum dráttum haft að engu þessa þverpólitísku heildarniðurstöðu Alþingis fyrir fimm árum sem átti að vera okkar stærsti lærdómur af efnahagshruninu.
Það er nefnilega ekki bara svo að það sé tilfinning okkar sem erum þátttakendur og áhorfendur að íslenskum stjórnvöldum að mikil afturför hafi orðið í pólitískum áherslum en ekki síður í vinnubrögðum frá því sem við vildum að við værum stödd eftir hrun, heldur er það svo þegar maður fer að rýna gögn, sama hvort það er rannsóknarskýrsla Alþingis, þingsályktunin eða önnur þau fyrirheit sem uppi voru höfð eftir efnahagshrunið, að allt kemur þar saman í þeirri döpru staðreynd að núverandi stjórnarflokkar haga sér eins og það hafi ekki orðið hrun, eins og það hafi ekki komið út fjöldamörg bindi um aðdraganda og orsakir þess hruns, eins og Alþingi hafi ekki sammælst um að endurskoða vinnubrögð sín, styrkja Alþingi og endurskoða verklagið, heldur hafi þetta allt saman verið vondur draumur.
Allan tímann frá stofnun íslenska lýðveldisins hefur það verið svo að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í ríkisstjórn, öll kjörtímabil að hluta eða heild nema síðasta kjörtímabil. Veruleikinn er sá að það sem gagnrýnivert er og kemur fram í rannsóknarskýrslu Alþingis og síðan í okkar sameiginlegu þingsályktun er fyrst og fremst vinnubrögð, verklag, pólitískt siðferði og forgangsröðun Sjálfstæðisflokksins á Íslandi sem hefur haft tögl og hagldir og ráðið hér samfélaginu og framþróun þess.
Það kveður meira að segja svo rammt að þessari rótfestu valdsins í íslenskum stjórnmálum að það kemur djúpt úr iðrum ýmissa þingmanna Sjálfstæðisflokksins í andsvörum og ræðum að við sem höfum tímabundið setið í Stjórnarráðinu með fullt umboð til þess frá lýðræðislega kjörnu Alþingi eigum eiginlega að skammast okkar fyrir það. Við eigum eiginlega að skammast okkar fyrir að hafa yfir höfuð haft lyklana að Stjórnarráðinu í fjögur ár. Það hafi eiginlega verið mistök og misskilningur vegna þess að Íslandi eigi að vera stjórnað af Sjálfstæðisflokknum og þeim flokki sem á hverjum tíma er tilbúinn til að styðja hann til valda, sem er núna Framsóknarflokkurinn.
Sögulega er það þannig, hvort sem það er Alþýðuflokkurinn sálugi á sínum tíma eða Framsóknarflokkurinn, að hjálparflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur iðulega smátt og smátt horfið inn í Sjálfstæðisflokkinn að því er varðar áherslur og pólitískt innihald. Meira að segja hefur kveðið svo rammt að því að það gerðist bæði með Framsóknarflokkinn á sínum tíma og Alþýðuflokkinn að þeir nánast misstu allt sitt fylgi. Það er að gerast núna með Framsóknarflokkinn og það er meira að segja greinilegt fyrir pólitíska rýnendur að Framsóknarflokkurinn er að hluta orðinn hægri sinnaðri en Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur. Ef teboðshreyfingin í Bandaríkjunum á einhvers staðar félaga þá er það félagar yst á hægri kanti Framsóknarflokksins í dag.
Með þessu bandalagi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks þá vonaði maður auðvitað að þessir kornungu menn, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson, hæstv. báðir tveir, þegar þeir tóku við stjórnvelinum á myndarlegum blaðamannafundi á Laugarvatni, mundu flytja með sér einhverja ferska strauma. Þeir mundu flytja með sér einhverja óvænta framtíðarsýn, nútímaleg vinnubrögð, skilning á því að hér hefði orðið efnahagslegt, pólitískt og samfélagslegt hrun að svo mörgu leyti. En hvað gerist?
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks felur í sér mikinn texta, m.a. loforð um að virkja samtakamátt þjóðarinnar og vinna gegn því sundurlyndi og tortryggni sem einkennt hefur íslensk stjórnmál og umræðu í samfélaginu um nokkurt skeið. Þar segir að framfarir og bætt lífskjör á Íslandi hafi byggst á samvinnu og samheldni og til framtíðar muni Íslendingar halda áfram að leysa sameiginlega af hendi helstu verkefni þjóðfélagsins.
Tveimur og hálfu ári síðar er íslenskt samfélag að ótrúlega mörgu leyti í uppnámi. Það eru stórir hópar í samfélaginu sem kvarta sáran yfir skilningsleysi, yfir kjaragliðnun, yfir niðurlægingu og yfir því að ekki sé á þá hlustað. Þessir tveir ungu menn, leiðtogar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, iðka og stunda þá pólitík sem menn hefðu verið fullsæmdir af eða hefði verið þeim til skammar um miðja síðustu öld.
Það er áhugavert þegar það birtist svo heil breytingartillaga við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2016 sem beinlínis afhjúpar þennan veruleika. Það er breytingartillaga frá meiri hluta fjárlaganefndar þar sem að hann leggur til fé til framkvæmda á Alþingisreit. Þetta er ekki stór tala í samhenginu öllu saman, þetta er lítil tala, 75 millj. kr. Það er sitthvað hægt að gera fyrir hana en hún breytir engu í stóru myndinni. En það sem segir í textanum með breytingartillögunni er, með leyfi forseta:
„Við undirbúning framkvæmda skal hafa hliðsjón af þeim áformum sem uppi voru um uppbyggingu á Alþingisreitnum fullveldisárið 1918, samanber fyrirliggjandi teikningar Guðjóns Samúelssonar fyrrverandi húsameistara ríkisins og áform um minningarviðburði sem tengjast komandi aldarafmæli fullveldis Íslands.“
Forseti. Þessi texti er ekki frá Jónasi frá Hriflu. Þessi texti á rætur að rekja inn í hugarheim forsætisráðherra (Gripið fram í.) sem stendur á fertugu og er formaður Framsóknarflokksins. Þessi texti, svo meinleysislegur sem hann er, endurspeglar nákvæmlega það að Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn og það valdabandalag sem þeir standa fyrir nánast allan lýðveldistímann snýst í raun og veru um að finnast maður vera réttkjörinn, réttborinn til valda, óháður öllu umboði og þurfi ekki einu sinni að taka tillit til þess að við ætluðum að draga ályktanir og lærdóma af efnahagshruninu.
Hvað er þetta annað en lélegt verklag og skortur á formfestu? Hvað er þetta annað en að Alþingi glati sjálfstæði sínu og grundvallarhlutverki í hendurnar á fólki sem leyfir sér að nýta ríkisfjármálin sem leikvöll fyrir eigin persónuleg áhugamál, sem mokar milljónum og milljörðum ofan í skúffur í ráðuneytum sínum til að fá útrás fyrir sína drauma um að endurbyggja hús eftir Guðjón Samúelsson? Það er galnara en nokkurn mann hefði órað fyrir að við sætum uppi með slíka forustu á Íslandi eins og við gerum í dag.
Aðeins um samskipti hv. fjárlaganefndar við opinbera starfsmenn, tilteknar stofnanir og samfélagið allt í orðum og gjörðum. Þar má nýta sér sína faglegu þekkingu og svo vill til að ég hef bakgrunn í málfræði og hef gaman af textagreiningu og því að fara yfir orðfæri og orðalag fólks, hvaða stílbrögðum er beitt og hvaða stef endurtaka sig í umræðunni. Þegar maður fer yfir yfirbragðið og þróunina hvað þetta varðar þá verður maður þess áskynja að núverandi meiri hluti hefur tileinkað sér mjög skýran stíl. Það má segja að fyrst og fremst hafi framsóknarmenn farið þar í broddi fylkingar, sjálfstæðismenn fylgt fast á eftir, en Framsóknarflokkurinn hefur mjög ítrekað talað um að aldrei hafi nokkuð viðlíka gerst og það sem nú er að gerast hjá núverandi ríkisstjórn. Aldrei. Það er talað um lýðveldistímann, það er talað um undanfarna áratugi, það er talað um í sögunni. Mikið eru notuð orðin „aldrei“, „alltaf“, „stærst“, „mest“ og „hraðast“. Forsætisráðherra fer nokkuð á undan með sínu fordæmi og gerir okkur þann greiða í dag að skrifa grein sem rammar inn einmitt þennan skilning hans á lífinu og tilverunni.
Raunar er ég viss um að ekki eru allir þingmenn meiri hlutans meðvitaðir um það hversu mikil þáttaskil hæstv. forsætisráðherra er að skapa í pólitískri orðræðu á Íslandi með þessu orðfæri annars vegar um eigið ágæti, eigin sérstöðu og ríkisstjórn sem sé í raun og veru að brjóta í blað með þvílíkum hætti að það verði skrifað í sögubækur, ekki bara á Íslandi heldur í heimsbyggðinni allri enda hafi fyrri ríkisstjórn líka verið sögulega hörmuleg á allan hátt. Þar hafi ekkert verið gert af viti og það var meira að segja gengið svo langt að ríkisstjórnin síðasta var verri en efnahagshrunið. Það sagði forsætisráðherra líka. Á hinn bóginn hefur það verið þannig að þeir sem hafa spurt hann í fyrirspurnatímum eða í fjölmiðlum eða hvernig það allt saman hefur farið fram, hafa verið sögulega vitlausir, farið með rangt mál í einu og öllu, misskilið allar forsendur og yfirleitt hefur það verið þannig að forsætisráðherra hefur ekki getað gefið sér tíma í að ræða málið efnislega vegna þess að hann hefur verið svo yfirkominn af hneykslun yfir því hversu mikill bjánagangur sé að jafnaði fólginn í öllum spurningum sem upp eru bornar í fyrirspurnatíma Alþingis.
Svo kemur þessi grein í dag sem er merkileg og hún er kannski heimsmet, ég átta mig ekki á því. Það kann að vera að hún sé einmitt nýtt heimsmet, hún er að minnsta kosti einsdæmi, alla vega Íslandsmet. Ég minnist þess að minnsta kosti ekki að forsætisráðherra hafi á nokkrum tíma, og þó hef ég fylgst með stjórnmálum frá því að ég man eftir mér, sett sig niður við það að skrifa grein til höfuðs einstaklingi. Ég minnist þess ekki að það hafi gerst. Þetta er svona grínpistill, þetta er brandari sem minnir á menntaskólagrein, dálítið grínaktugt og þetta er eins konar spælingartexti. En það kann að vera að hæstv. forsætisráðherra sem hefur stundum talað fyrir róttækri rökhyggju hafi hitt sjálfan sig fyrir í þessari grein og mætti segja mér að ef við værum stödd í spurningakeppni úti á landi eða í Útsvari væri svarið augljóst ef einhver spyrði: Hverjum er lýst svo:
„Topparar láta staðreyndir eða framtíðina ekki þvælast mikið fyrir sér. Fyrir þá er aðalatriðið að vera maður líðandi stundar, sá sem fangar athyglina og verður vinsæll meðal trúgjarnra um sinn. Aðrir geta séð um að fást við afleiðingarnar.“
Við hvern er átt? Með leyfi forseta, úr sömu grein:
„Í hvert sinn sem hann tók orðið var það auk þess gert af yfirlæti og gefið til kynna að allir aðrir en hann væru fábjánar.“
Ég ætla að láta þingheimi eftir að geta í eyðurnar með það hver það er sem kemur manni fyrst í hug þegar þessi mannlýsing er lesin upp. Toppari, segir hæstv. forsætisráðherra, og er að bregðast við blaðagrein Kára Stefánssonar í gær.
Þá þykir forsætisráðherranum sæmandi að tala í hálfkæringi um svo alvarlegt mál sem fjárhagsstöðu Landspítalans. Maður veltir því fyrir sér hvort Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, sé toppari að mati forsætisráðherrans og aðrir þeir sem hafa gert athugasemdir við fjárhag og skilning og skilningsleysi fjárlaganefndar. Er það með þeim hætti sem stendur til að afgreiða forstjóra Landspítalans eins og þessi stjórnarmeirihluti hefur vanið sig á að afgreiða alla gagnrýni? Með einhvers konar stimplum um að viðkomandi sé, ef hann er ekki toppari sem er orð dagsins, að væla eða hann er popúlisti eða hann er að viðhafa einelti, pólitískt einelti, eða jafnvel andlegt ofbeldi þegar mest liggur við.
Forseti. Þau mál sem eru helst uppi í almennri opinberri umræðu þessa dagana eru mál aldraðra og öryrkja. Í gær var haldinn opinn fundur í fjárlaganefnd með Landssambandi eldri borgara og Öryrkjabandalaginu eftir nokkurn vandræðagang þar sem meiri hluti fjárlaganefndar féllst á að halda þennan opna fund eins og sjálfsagt og eðlilegt var til að ræða kröfur þessara hópa sem snúast um að fá afturvirka hækkun á sínum bótum í samræmi við annað það sem um er að vera í íslensku kjaraumhverfi.
Það urðu nokkur boðaföll í samfélagslegri umræðu þegar meiri hlutinn allur felldi breytingartillögu minni hlutans við fjáraukalög sem lutu að því að hækka þessar bætur afturvirkt til dagsins 1. maí, mætti vera 1. mars, og ljóst að tvennt hefur gerst síðan. Í fyrsta lagi hefur orðið til pappír sem stjórnarþingmenn ganga með upp á vasann og nota til þess að svara öllu því sem upp kemur í þessum efnum. Á þessum pappír eru prósentur og milljarðar sem lesin eru upp í belg og biðu og niðurstaðan er sú með mismunandi orðalagi að þessir hópar hafi í raun fengið meira en allir aðrir og einhverjir hafa gengið svo langt að segja að þessir hópar hafi að minnsta kosti fengið nóg. Í þessum upplestri á prósentum og milljörðum er ekki talað um ytra samhengi á nokkurn hátt. Það er ekki talað um magnaukningu eða fjölgun í báðum þessum hópum heldur er látið eins og um ávinning einstaklinga sé að ræða í þeim gríðarlegu tölum sem lesnar eru upp.
En málið er miklu einfaldara en þetta. Þetta snýst bara um það eina réttlætismál að þessi hópur sitji ekki einn eftir. Það er gjarnan vísað til ársins 2009 og þá er það nú svo smekklegt af sjálfstæðismönnum og framsóknarmönnum að tala eins og árið 2009 hafi bara verið venjulegt ár í Íslandssögunni, algjörlega venjulegt, og ekkert sérstakt þá verið um að vera nema tekið hafi við alveg óvenjulega illskeytt og illgjörn ríkisstjórn sem hafi verið með það efst á sínu blaði að gera illa við aldraða og öryrkja. Þessir flokkar hafi undir fölsku flaggi látið kjósa sig út á einhver huggulegheit og hafi svo bara mætt og byrjað að ganga í skrokk á þeim sem síst skyldi í samfélaginu. Þetta er málflutningur meiri hlutans. Ekkert sérstakt við þetta ár. Þeir finna sig í því að bera það saman stöðu samfélagsins 2009 og þá stöðu sem er uppi í dag og gera það með opin augu. Hv. þm. Brynjar Níelsson fór mikinn í ræðustól, fyrrverandi formaður lögmannafélagsins. Þegar sú sem hér stendur kallaði fram: Varð hér ekki efnahagshrun? þá sagði hv. þingmaður: Ég var ekkert að tala um það. Nei, það er nefnilega það. Það var alls ekkert verið að tala um það. En þetta er í samhengi og staðan árið 2009 snerist um að forða Íslandi frá því að missa efnahagslegt sjálfstæði. Við tókum við nánast hrundum ríkissjóði, 120 milljarða kr. halla sem þurfti að taka á á miðju ári og hver einasti Íslendingur gekk undir það ok, hver einasta stofnun, hver einasti opinber starfsmaður, hver einasti þingmaður og sannarlega hver einasti öryrki og hver einasti ellilífeyrisþegi. Það er öllu þessu fólki að þakka að Ísland stendur í lappirnar enn þá.
En hver er staða dagsins í dag? Nú berja menn sér á brjóst yfir því að Ísland sé á miklu flugi þó að ríkissjóði sé enn eina ferðina skilað á núlli og menn séu ekki byrjaðir að borga niður skuldir. Ísland er á miklu flugi. Það er hagvöxtur, atvinnuleysi lágt, allar hagtölur eins og við viljum hafa þær, laun hækka og hvað gerum við þá? Öryrkjar og aldraðir eru partur af samfélaginu. Þessir hópar eru partur af heildarmyndinni og þegar samfélagið er allt saman á uppleið þá eiga þessir hópar líka að vera á uppleið. Þeir eiga að vera partur af batanum. Það er ómálefnalegt og það er skammarlegt að bera saman árið 2009 og 2015. Fullkomlega.
Ég vænti þess að við 3. umr. fjáraukalaga verði til, vonandi í samstarfi við einhverja stjórnarþingmenn, breytingartillaga sem gefur þingheimi færi á því að taka á ný afstöðu til þess hvort ekki eigi að styðja afturvirkar hækkanir til aldraðra og öryrkja. Hv. þm. Ásmundur Friðriksson segir á Bylgjunni í morgun: Við erum gjörsamlega búin að tapa þessari umræðu. Og þykir honum það slæmt? Nei, hv. þingmaður segir:
„Ég var bara ekki á tánum. Ég var ekki með allar upplýsingarnar fyrir framan mig til að geta staðið upp og gert grein fyrir atkvæði mínu. Það hafa örugglega verið fleiri því að svo um kvöldið fengum við allir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ýmsar upplýsingar um stöðuna. Mér líður illa með þetta, ég bara viðurkenni það.“
Virðulegi forseti. Það er enn tími til stefnu, það er enn hægt að hafa áhrif á þessa vondu ákvörðun og snúa henni við. Þar standa þessir stóru hópar með okkur í þinginu sem gerum þetta að tillögu okkar og líka stór hluti þjóðarinnar í þessu mikilvæga hagsmunamáli sem hér hefur verið rakið.
Það liggur fyrir um boðað frumvarp hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra um að fallið verði frá lækkun útvarpsgjalds að einhver bið verður á því að það komi fram. Þá vil ég gera grein fyrir því, enda er bæði rétt og skylt að gera það, að við í stjórnarandstöðunni munum væntanlega sjá til þess að fram komi breytingartillögur við bæði tekju- og útgjaldahlið frumvarpsins til þess að Alþingi geti tekið afstöðu til málsins ef það vefst svona fyrir meiri hlutanum að koma þeirri spurningu til Alþingis. Það er sjálfsagt og eðlilegt að gera það. En ég tel um leið rétt að benda á það að forusta fjárlaganefndar og meiri hlutinn hefur fundið sig í því að fara á bls. 10 beinlínis með rangt mál og ósannindi. Það hefur meira að segja gengið svo langt að hv. formaður fjárlaganefndar Vigdís Hauksdóttir hefur brigslað öðrum um lygar úr ræðustól Alþingis, (Gripið fram í.) byggt á þessu sama gagni og bendir jafnvel á þessar línur sem sérstaka og mjög örugga heimild um að rétt sé með farið, á sinn eigin texta. En svo það sé sagt í ræðu þá er það þannig að þótt í nefndaráliti meiri hlutans og í endurteknum ræðum og andsvörum formanns fjárlaganefndar sé því haldið fram að lækkun útvarpsgjaldsins í 16.400 kr. um næstu áramót hafi verið tekin í tíð síðustu ríkisstjórnar, þá er það rangt. Ákvörðunin var tekin við afgreiðslu frumvarps til laga um ýmsar forsendur fjárlaga í desember 2013 fyrir árið 2014, er sem sagt á ábyrgð núverandi stjórnarmeirihluta.
Ég óska eftir því og geri raunar kröfu til þess að þar sem búið er að mæla fyrir nefndarálitinu þá komi hv. formaður fjárlaganefndar einhvern tíma áður en umræðunni lýkur og leiðrétti þessi ósannindi í nefndaráliti meiri hlutans. Það er afar mikilvægt fyrir umræðuna að þetta sé dregið til baka og raunar er það því miður þannig að þetta er toppurinn á ísjakanum. Hér eru ósannindi í nefndaráliti og svo dettur inn milljarður eða 1.200 millj. kr. í gær sem gleymdust. Það er greinilega víða pottur brotinn í vinnu hv. fjárlaganefndar og greinilegt að sá tími sem hv. fjárlaganefnd fékk til viðbótar til að vinna vinnuna sína hefur ekki dugað ekki að minnsta kosti þessari forustu fjárlaganefndar til að vinna vinnuna sína almennilega, fara með satt og rétt mál í nefndaráliti fyrir það fyrsta og í öðru lagi að gæta að því að yfirfara tölur áður en Alþingi er gert að fara yfir málin.
Í breytingartillögu minni hlutans eru allnokkur mál en mig langar að nefna tvö í lokin. Í fyrsta lagi langar mig að nefna stafræna íslensku sem svo er kölluð sem snýst um þá staðreynd að íslensk tunga stendur höllum fæti. Hún er í vanda og undir þetta hafa fjölmargir fræðimenn og greinendur tekið. Það sem meira er er að á landsfundi Sjálfstæðisflokksins tók hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra Bjarni Benediktsson líka undir þetta. Hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra, á degi íslenskrar tungu hvorki meira né minna, tók líka undir það að tryggt væri að sókn í þágu íslenskrar tungu yrði í lagi á næsta fjárlagaári. Það sem við höfum fyrir framan okkur eru 30 millj. kr. í fjárlagafrumvarpinu en við leggjum til 170 millj. kr. að auki til þess að koma til móts við þær áætlanir sem þeir sem best þekkja til hafa lagt fram. Ég vænti þess og trúi því að hér hafi bara orðið yfirsjón hjá meiri hlutanum og fólk hafi gleymt þessu máli vegna þess að það voru uppi slík fyrirheit um þetta eins og svo margt annað. Við skulum sjá til hvað gerist þegar við göngum til atkvæða um þetta tiltekna mál og kannski getum við átt uppbyggileg samtöl á milli 2. og 3. umr. og það kann að vera að skilningur menntamálaráðherra skipti máli í því efni ef orð hans hafa yfir höfuð eitthvert vægi í stjórnarmeirihlutanum þessa dagana. Um það er maður hugsi miðað við stöðu málsins sem hann ber fyrir brjósti og situr fast í ríkisstjórn.
Við leggjum líka til að leggja fjármagn inn í loftslagssjóð sem er sérstakur sjóður sem varð til þegar loftslagslögin voru samþykkt frá Alþingi, sérstök lög um loftslagsmál sem fela í sér bæði EES-mál að hluta, þ.e. skráningarkerfi og viðskiptakerfi með losunarheimildir, en ekki síður utanumhald um losunar- og loftslagsmál á Íslandi almennt. Í þeirri löggjöf segir að leggja skuli fram aðgerðaáætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda með tilteknu árabili en þar er líka talað um loftslagssjóð sem er þá til og er skilgreindur samkvæmt lögum.
Núverandi ríkisstjórn hefur lamað þennan sjóð, hefur látið renna úr honum í ríkissjóð. Við leggjum til að fjármagn fari í loftslagssjóðinn en ekki síður að það verði lagt myndarlegt fjármagn til græna hagkerfisins sem er verkefni sem við vorum sammála um hér 63 í þingsalnum að halda áfram með. Það datt svo ofan í skúffu forsætisráðherra og hvarf síðan á öðru ári ríkisstjórnarinnar eins og svo margt annað. Ráðherra eins og Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafði sérstaklega illan bifur á öllu því sem hafði orðið til á síðasta kjörtímabili. Það gekk meira að segja svo langt að menn höfðu horn í síðu verkefnis eins og sóknaráætlunar landshluta og þeirrar vinnu vegna þess að hún hafði hafist á síðasta kjörtímabili þó að hún hafi verið með þátttöku og aðkomu allra stjórnmálaflokka víða um land, sveitarstjórnarmanna og atvinnulífs og allra þeirra sem best til þekkja.
Virðulegi forseti. Við erum hér að styrkja þessi mál því að það dugar ekki að vera bara með 16 atriða óskalista undir falsheitinu sóknaráætlun í loftslagsmálum heldur þarf í raun og veru að setja fjármagn í að styrkja atvinnulífið, frumkvöðla og þá sem eru að þróa loftslagsvæna tækni á mörgum sviðum því að það sem fyrir okkur liggur eins og öllum öðrum samfélögum í heiminum er að tryggja að sá vöxtur sem samfélagið gengur í gegnum sé ekki á kostnað auðlindanna eða á kostnað loftslagsins. Til þess að svo megi verða þurfa stjórnvöld að sýna það í verki að þau styðji loftslagsvæna þróun og þarna viljum við sýna viðleitni í þá veru.
Loks leggjum við til, svo ég nefni það alveg í bláendann, fjármagn til þess að bregðast við þeirri miklu skriðu sem hefur orðið sýnileg í samfélaginu þar sem þolendur kynferðisbrota og kynbundins ofbeldis hafa talað í gegnum tilteknar byltingar, Beauty tips-byltinguna og Free the nipple-byltinguna og fleiri slíkar. Alþingi er alveg úr sambandi við samfélag sitt ef það bregst ekki við þeirri staðreynd að um er að ræða svo mikla skriðu af alvarlegum verkefnum sem við þurfum að bregðast við að við verðum að sýna það í fjárlagafrumvarpi að okkur sé alvara í þeim efnum. Í því skyni er hér líka lagt fram fé.
Ég er búin með tíma minn en það sem ég ætla að árétta í bláendann er að enn er hægt að snúa (Forseti hringir.) við þeirri óheillaþróun er varðar aldraða og öryrkja, Landspítala – háskólasjúkrahús og Ríkisútvarpið.