145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[15:29]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Forseti. Svo að allrar sanngirni sé gætt þá er það auðvitað ekki þannig að við höfum ekkert lært af hruninu. Ég held að við gætum raunar nefnt nokkur verkefni sem við höfum verið að vinna hér á vettvangi þingsins og úti í samfélaginu sem endurspegla slíka lærdóma.

Af því að ég hef mjög stuttan tíma, bara eina mínútu, þá ætla ég að nefna eitt mál sem hv. þingmaður þekkir vel, og það er endurskoðun útlendingalaga. Það er vinna sem sett var af stað af hæstv. þáverandi ráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, með þverpólitískri aðkomu allra flokka. Sú vinna byggði á vinnu fyrri ríkisstjórnar, byggði á vinnu Ögmundar Jónassonar og því frumvarpi sem fyrir lá frá hans tíma, án þess að henda þeirri vinnu, með aðkomu allra flokka, þar sem glímt var við mjög viðkvæman og erfiðan málaflokk en þess gætt að ná öllum sjónarmiðum að borðinu til að freista þess að ná sameiginlegri niðurstöðu.

Þeirri niðurstöðu hefur verið náð. Þessi þingmannanefnd hefur afhent hæstv. núverandi innanríkisráðherra frumvarpið. (Forseti hringir.) Ég bíð spennt eftir því að við sjáum þá afurð vegna þess að hún mundi brjóta í blað í störfum þingsins.