145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[15:31]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég tel að Alþingi endurspegli í raun og veru samfélagsumræðuna á hverjum tíma. Þegar við erum á hvað lægstu plani hér á Alþingi þá erum við virk í athugasemdum. Þegar okkur gengur vel, tölum saman og leiðum mál til lykta, þá erum við einhvers staðar annars staðar eins og á fjöldamörgum vettvöngum úti í samfélaginu þar sem verið er að gera góða, uppbyggilega og skynsamlega hluti. Við erum ekkert flóknari en það. Við erum alveg jafn góð og alveg jafn slæm og gerist og gengur á Íslandi.

Ég held hins vegar að við höfum stigið tvö skref áfram eftir hrunið, við samþykkt þingsályktunar sem ég fór yfir áðan. En það sem hefur gerst frá síðustu kosningum er að við höfum runnið eitt skref aftur á bak.