145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[15:36]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Forseti. Þetta er nú stuttur tími til að ræða þessi mál sem eru mér mjög ofarlega í sinni. Sjálf var ég stjórnarmaður í Sambandi íslenskra sveitarfélaga og hafði sérstaklega illan bifur á þeim veruleika að sveitarfélögin þyrftu að sækja peninga — sem þeim í raun og veru bæri, til þess að standa straum meira og minna af opinberum verkefnum og þjónustu við íbúa — til Alþingis. Þetta er alveg ótrúleg samsetning á valdi og samskiptum stjórnsýslustiga á Íslandi sem er bæði tímasóun, sóun á mannauði og peningum og öllu þessu hér.

Ég er sammála því að sóknaráætlanirnar eru verkfæri til þess að fanga þetta. En ég er líka þeirrar skoðunar, og ég held að við eigum að hefja það samtal við Samband íslenskra sveitarfélaga, að landshlutasamtökin fái skýrara verkefni og skýrara hlutverk sem er í raun óskilgreint núna í lögum. Þeim eru falin ýmis verkefni hér og þar í löggjöfinni en hvergi á einum stað liggur fyrir að landshlutasamtökin hafi skilgreint og lýðræðislegt hlutverk gagnvart íbúum á sínu svæði og hafi í raun stöðu til að ráðstafa fé og forgangsraða því miðað við það sem íbúarnir vilja á hverjum stað.