145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[15:40]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú er hv. þingmaður að gagnrýna þingmann sem getur ekki svarað fyrir sig. Mér hefði fundist eðlilegt að hv. þingmaður hefði þá gagnrýnt mig af því að ég hefði getað svarað fyrir mig núna, en ég get það ekki eftir þetta. (Gripið fram í.) Nei, hv. þingmaður þarf þá að fara í ræðu en getur ekki svarað fyrir sig núna.

Ég var að vísa sérstaklega til þess að lunginn af ræðu hv. þingmanns fór í persónugreiningar á forsætisráðherra, sem getur heldur ekki svarað fyrir sig í þessari umræðu, þegar við erum að ræða fjárlögin. Mér hefði fundist eðlilegt að hv. þingmaður hefði bara rætt fjárlögin.

Úr því að hv. þingmaður segir að síðasta ríkisstjórn njóti ekki sannmælis hjá núverandi ríkisstjórn og stjórnarþingmönnum hefði mér fundist eðlilegt, af því að hún tók þennan mikilvæga málaflokk sem eru almannatryggingar og lífeyrisréttindi, að hún færi þá yfir þær breytingar sem við erum búin að fara í, sem hafa svo sannarlega verið mikil útgjöld fyrir ríkissjóð en peningum vel varið. Hv. þingmaður (Forseti hringir.) vísaði í gögn sem allir hafa aðgang að og það er alveg á kristaltæru (Forseti hringir.) að framlögin til þessa málaflokks hafa verið hækkuð mjög út af ákvörðunum núverandi ríkisstjórnar