145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[16:22]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög áhugaverða ræðu. Það er hægt að taka undir að minnsta kosti það að arður verði meiri af Landsbankanum en gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Annað er kannski flóknara og of stuttur tími hér til að fara yfir það.

Ég spyr hv. þingmann hvort hann geti stutt þá tillögu í frumvarpinu að það skuli selja hlut í Landsbankanum. Sú tillaga hefur reyndar líka verið samþykkt af hv. stjórnarþingmönnum í ríkisfjármálaáætlun. Getur hv. þingmaður sætt sig við þessa tillögu og samþykkt?