fjárlög 2016.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Auðvitað höfum við skilning á því að það eru tveir flokkar í ríkisstjórn og menn semja um hlutina. Þó að Framsóknarflokkurinn hafi gert samþykkt um Landsbankann semja menn auðvitað sín á milli. Framsóknarflokkurinn hefur nefnilega líka gert samþykkt um kjör aldraðra og öryrkja. Núna stendur ekki til að bæta kjör aldraðra og öryrkja í samræmi við lágmarkslaun og það er staðfest að ekki stendur til að gera það heldur á að miða við launaþróun. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort líka hafi verið samið um þetta á milli flokkanna. Samdi Framsóknarflokkurinn sem stundum hefur verið kenndur við félagshyggju þessar kjarabætur (Forseti hringir.) aldraðra og öryrkja út af borðinu?