145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[17:12]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég get ekki svarað því en það er rétt sem hv. þingmaður bendir á að við höfum ekki tekið nægilega stór skref á undanförnum árum til að bæta heilbrigðiskerfið. Auðvitað er sumt gott gert og þótt ég sé fullorðin kona hef ég ekki verið mjög lengi í pólitík og aðeins á þingi frá 2009, en þar gat ég fylgst með þessum hlutum. Það sem við verðum hins vegar að gera er að setja niður fyrir okkur hvert við ætlum að stefna með heilbrigðismálin okkar. Hvert ætlum við að stefna? Síðan verðum við að taka skrefin þangað.

Menn hafa leitt að því líkur að verið sé að svelta opinbera kerfið og þreyta fólk þannig að það fagni einkarekstri. Ekki skal ég segja hvort það sé rétt. Hitt veit ég að starfsfólk heilbrigðisstofnana á Íslandi tók sannarlega á í kreppunni og sinnti þjónustu við mjög erfiðar aðstæður og hélt samt uppi góðri þjónustu, en að sjálfsögðu með þá von í brjósti að þegar kreppan væri búin og við farin að njóta árangurs erfiðisins kæmi betri starfsaðstaða, þá mundi það tikka inn, en það hefur hins vegar ekki gerst með sama hætti. Launin hafa lagast eftir mikla baráttu en starfsaðstaðan er enn eins og hún er og heilbrigðisstarfsmenn þurfa að skera niður og neita fólki um þjónustu sem það veit að það þarf á að halda.