fjárlög 2016.
Frú forseti. Menn lögðu í mikla vinnu til að búa til stefnumörkun fyrir Þjóðskjalasafnið, framtíðarsýn, stefnumörkun og komu líka inn á húsnæðið. Þar segir í þeirri stefnu sem var samþykkt í fyrra:
„Öll meginstarfsemi Þjóðskjalasafns verði á einum stað við Laugaveg í Reykjavík.“
Út frá þessu hafa menn unnið. Þegar heimildargrein birtist allt í einu í fjárlagafrumvarpi eða breytingartillögum við fjárlagafrumvarp verða menn auðvitað tortryggnir og velta fyrir sér hvað sé á seyði. Við erum búin að leggja í margra vikna vinnu til að búa til stefnumörkun fyrir safnið og svo kemur bara einhver heimildargrein frá meiri hluta fjárlaganefndar. Er einhver önnur stefna annars staðar sem gengur þvert á stefnu ráðuneytisins og starfsmanna og stjórnenda Þjóðskjalasafnsins? Auðvitað vekur þetta furðu. Ef ekki á að selja Þjóðskjalasafnið strax, af hverju má þá ekki bara bíða með heimildargreinina og koma svo með breytta stefnumörkun sem þessi heimild gæti þá byggt á? Mér finnst þetta skrýtið og ég er ekkert hissa á því að þeir sem standa að Þjóðskjalasafninu velti fyrir sér hvað þarna sé á ferðinni þegar þeir eru nýfarnir að vinna eftir stefnu sem var samþykkt í fyrra.
Varðandi heilbrigðiskerfið hef ég eða minni hlutinn ekki gagnrýnt kjarasamninga. Það þurfti vissulega að berjast fyrir þeim en þeir voru gerðir og báðir aðilar sættu sig við þá. Það er verið að gagnrýna að ekki komi inn fjármunir (Forseti hringir.) vegna magnaukningar á Landspítalanum fyrst og fremst og í opinbera kerfinu.