145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[18:46]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Já, enda held ég að enginn hafi hitt naglann jafn rækilega á höfuðið og hv. þm. Ásmundur Friðriksson úr stjórnarliðinu þegar hann viðurkenndi einfaldlega í hreinskilni að stjórnarliðið er búið að koltapa allri þessari umræðu. Þetta hafa ekki verið sérstaklega góðir dagar held ég hjá hæstv. ríkisstjórn og hennar liði ef við leggjum saman deilurnar við aldraða og öryrkja og brottflutning langveikra barna úr landi sem bara nístir í hjartað á hverjum sæmilega innrættum manni. Og svo hvernig hæstv. forsætisráðherra ryðst fram á ritvöllinn og svarar málsmetandi og þjóðþekktum einstaklingi. Það sem mér fannst eitt af því fyndna við þá grein er að hann var hins vegar aldrei nefndur á nafn, maðurinn sem allir vita og sjá í hendi sér strax að er verið að svara, hann er aldrei nefndur á nafn. Hann er eiginlega uppnefndur, „topparinn“. Lægra verður það nú varla fyrir utan þann hugarheim sem þetta lýsir inn í.

Nei, hæstv. ríkisstjórn á ekki gott með að taka gagnrýni. En við verðum að standa okkur í stykkinu og veita henni aðhald eftir sem áður (Forseti hringir.) þótt það sé orðið alveg morgunljóst að a.m.k. sumir innan raða stjórnarliðsins fá ekki háa einkunn í því að það megi tala til þeirra eða veita þeim svona hæfilegt aðhald.