fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Ég heyrði áðan og hlustaði vel á stórgóða ræðu frá hv. 2. þm. Reykv. n., Frosta Sigurjónssyni. Hann fjallaði um leiðir til að auka tekjur ríkisins um 20–30 milljarða á ári. Hann flutti ræðu sína á um það bil 20–30 mínútum og hafði oft á orði að ræðan mundi spara ríkinu milljarð á mínútu. Sitt sýnist nú sjálfsagt hverjum um það, en mér þykir tilefni til að ræða þær hugmyndir sem komu þar fram, sé til hvort ég hafi tíma til einhvers meira, annars fer ég í aðra ræðu. En ég verð að segja um þær hugmyndir sem oft koma fram í máli hv. þingmanns að þær eru oftar en ekki mjög áhugaverðar. Ég er ekki alltaf sammála honum, ég er stundum sammála honum og stundum er ég sammála honum um vandamálið en ekki lausnina og stundum skil ég hvað hv. þingmaður er að fara án þess að vera endilega sannfærður um að vandamálið sé rétt greint eða að lausnin sé rétt hugsuð. En þetta er umræða sem mér finnst samfélagið og sér í lagi þingheimur taka allt of lítinn þátt í, umræðan um þetta fyrirbæri sem við tökum sem sjálfsögðum hlut í okkar samfélagi og allir telja sig skilja en enginn gerir raunverulega til fulls; peninga. Peningar eru bara fyrirbæri í samfélagi okkar sem ákvarða hvernig við skiptumst á gæðum og þjónustu, hvernig hún er framleidd og hvaða hvatar eru að baki mannlegri hegðun í hagkerfinu svokallaða.
Fyrsta hugmyndin, ég taldi sex í ræðu hv. þingmanns, er sú að hv. þingmaður stingur upp á því að við getum bætt afkomu ríkissjóðs á næsta ári og eftir það líklega um um það bil 4–5 milljarða á ári með því að selja ekki 30% hlut í Landsbankanum. Þar kemur inn í málið ákveðin hugmyndafræðileg umræða um hlutverk ríkisins, sér í lagi á samkeppnismarkaði og peningamarkaði, og hvert hlutverk ríkisins eigi að vera þegar kemur að bankakerfinu í sjálfu sér. Nú voru bankarnir sem voru einkavæddir um aldamótin í ríkiseigu og ýmis vandamál voru tengd því að mínu mati. Eftir einkavæðingu kom hins vegar í ljós að þessir bankar — þetta er mín túlkun — kunnu ekki að fara með peninga. Þeir kunnu ekki að fara með þau völd sem fylgja banka, banka sem hefur vald til að skapa innstæðureikninga og lána fé eða, eins og hv. þm. Frosti Sigurjónsson mundi segja og ég get tekið undir í það minnsta í víðum skilningi, að búa til peninga.
Ég verð að segja að sú hugmynd að selja ekki 30% hlut í Landsbankanum þykir mér, í sambandi við fjárlög, ekki slæm, í versta falli áhugaverð. Ég velti fyrir mér hvort tölurnar séu alveg rétt reiknaðar. Ég hef ekki gert það sjálfur þannig að mér þætti vænt um að fá fleiri innlegg frá öðrum um það mál, en hugmyndin er áhugaverð og hún er þess virði að ræða hana. Hins vegar kemur upp sú spurning í kjölfarið hvort það sé eðlilegt hlutverk ríkisins að reka banka og það er eðlileg og lögmæt spurning. Það er mjög skiljanlegt að mínu mati að margir séu skeptískir á það, ég er það sjálfur. En hins vegar situr eftir í mér vantraust gagnvart því að einkaaðilar hafi þetta vald. Vandinn við vald er að oft er ekki einfaldlega hægt að útrýma því, það er bara hægt að færa það til, dreifa því eða eitthvað því um líkt. Og peningamyndunarvaldið verður alltaf til svo lengi sem einn getur lofað öðrum einhverju, um leið og einn getur lofað öðrum að borga eitthvað til baka getur hann á ákveðinn hátt í ákveðnum skilningi búið til peninga. Í því liggur vandinn. Þegar við lítum á hlutverk ríkisins í peningamyndunarferlinu þá verðum við að spyrja okkur hvað sé eðlilegt jafnvægi þessa peningamyndunarvalds milli ríkisins annars vegar og hins vegar einhverra aðila úti í bæ sem lúta lögmálum markaðarins.
Nú er það þannig að við búum í afskaplega litlu hagkerfi þar sem reglur kapítalismans, sem eru ekki allar vitfirrtar, sumar þeirra eru það pínupons en ekki allar og geta jafnvel verið rökréttar í stóra samhenginu, brotna niður í svo litlu hagkerfi. Ein af þeim reglum er hugmyndin um samkeppni. Til að það geti orðið samkeppni þurfa að vera nokkrir aðilar á markaðnum, því fleiri því betra. Því stærra sem hagkerfið er því betra er það fyrir samkeppnina. En við búum í smáu hagkerfi þar sem eru fáir aðilar, ekki bara á Alþingi heldur í samfélaginu yfir höfuð, hér eru fáir einstaklingar, við erum einungis um 330 þúsund sem er afskaplega fátt fólk. Það að ætla að hafa virkan samkeppnismarkað hér í nokkurri grein eða iðnaði er langt frá því að vera sjálfsagt. Við erum viðkvæm fyrir fákeppni sérstaklega og jafnvel einokun.
Þegar fákeppni ríkir á bankamarkaði, á þeim markaði þar sem fjármagnið í meginatriðum verður til, verður að gefa því gaum að hugsanlega sé eðlilegra að hafa samkeppni milli mjög ólíkra aðila, þ.e. einkaaðila annars vegar og ríkis hins vegar. Ég verð að segja að ég hef þessa sömu skoðun einnig þegar kemur að ýmsum öðrum málaflokkum, þar á meðal fjölmiðlum. Mér finnst í raun og veru eðlilegt að hafa ríkisfjölmiðla á Íslandi, hreinlega vegna þess sem mér finnst eðlilegt — eðlilegt er kannski rangt orð, en alla vega er skynsamlegt að hafa einkaaðila í fjölmiðlarekstri í samkeppni við einhvern sem þeir munu aldrei alveg ráða við í samkeppninni, nefnilega ríkið. Mér þykir hið sama um bankamarkaðinn. Það þarf að vera samkeppni en í svo smáu hagkerfi þarf að vera eitthvað sem drífur áfram samkeppnina.
Nú hef ég af og til kvartað yfir því að ég telji hæstv. íslenska þjóð ekki hafa mjög mikið verðskyn. Það er ekkert endilega íslensku þjóðinni sjálfri að kenna, það er að mínu mati að verulega miklu leyti vegna einkenna íslensku krónunnar og verðbólgutilhneigingar hennar en eftir stendur að þetta fyrirbæri, samkeppni, er ekki mjög virkt hér og verður ekki mjög virkt fyrr en hér býr ansi miklu fleira fólk sem er ekki fyrirsjáanlegt að verði í bráð. Á þeim forsendum þykir mér áhugaverð hugmynd hv. þingmanns um að selja einfaldlega ekki hlutinn í Landsbankanum og út frá klassískum, kapítalískum hugmyndum sem varða þennan tiltekna þátt hagkerfisins verð ég að segja að þarna sé ég ástæðu til að ræða undantekningu á annars ágætri hugmynd, nefnilega þeirri að samkeppni valdi því að neytandinn fái hvað mest fyrir sinn snúð.
Það eru nokkrar hugmyndir sem hv. þingmaður fór yfir sem ég treysti mér ekki til að fjalla um fyrr en ég hef haft tækifæri til að skoða þær betur enda ekki langt síðan ég heyrði ræðuna, hún var flutt fyrr í dag, en fimmta hugmyndin ef ég hef talið rétt þykir mér áhugaverð en ég sé galla á henni sem ég hefði viljað ræða betur. Nú er ekki hægt að álasa hv. þm. Frosta Sigurjónssyni fyrir að vera ekki hér, ég gaf honum allt of stuttan fyrirvara um að ég ætlaði að ræða þetta mál, en honum þótti leitt að geta ekki verið hér og farið í andsvör en við tökum bara umræðuna seinna. En fimmti liður í hugmyndasafni hans er sá að hægt sé að lækka vaxtakostnað Seðlabankans sjálfs við bankana um 4 milljarða á ári. Röksemdafærslan eins og ég hef skrifað hana niður hjá mér, með þeim fyrirvara að ég gæti hafa misskilið eitthvað af því sem hv. þingmaður sagði eða skrifað það vitlaust niður, er þessi: Seðlabankinn greiðir afganginn af sínum rekstri til baka, til ríkisins en borgar hins vegar stýrivexti á bindiskyldu sem bankarnir láta Seðlabankanum í té vegna kröfunnar um bindiskyldu. Ef ég skil tillöguna rétt þá er hugmyndin sú að Seðlabankinn hætti einfaldlega að borga þessa stýrivexti þannig að bindiskylt fé sem bankarnir þurfa að halda eftir verði hjá Seðlabankanum eða hvar svo sem það er geymt, skiptir kannski ekki endilega öllu máli, en alla vega að Seðlabankinn borgi ekki vexti af bindiskyldunni.
Þetta er áhugaverð hugmynd og í fljótu bragði virðist hún sanngjörn. Við höfum ákveðið að við ætlum að hafa bindiskyldu til að reyna að fyrirbyggja það að bankinn lendi í vandræðum — sem af einhverjum ástæðum er hlutverk ríkisins ef út í það er farið, það er önnur áhugaverð umræða — en á hinn bóginn tel ég að þrátt fyrir það sem virðist í fyrstu kannski sjálfsagt þá verðum við líka að taka tillit til þess að bindiskyldan er eitthvað sem Seðlabankinn ákveður fyrir bankana að þeir skuli uppfylla, þeir skuli halda eftir þessu fé. Féð er auðvitað ekki í notkun meðan það er í geymslu og það þýðir að í verðbólgu rýrnar féð og mér finnst það ekki endilega skynsamlegt. Bindiskylt fé bankanna þyrfti helst að halda raunvirði sínu í það minnsta en það þýðir aftur á móti í reynd, ef ekki eru vextir af því, að það væri verðtryggt. Mér líst ekkert á þá hugmynd að hafa það verðtryggt. Ég veit ekki hvað hv. þm. Frosta Sigurjónssyni þykir um það en mér þætti áhugavert að heyra hvað hann hefur um þetta að segja. Kannski eru rök fyrir því. En þetta leiðir okkur út í annan vinkil á þessari umræðu, nefnilega verðtrygginguna og það að hún hefur tilhneigingu til að losa bankana við það að hafa hagsmuni af því að halda verðbólgu í skefjum.
Þá kem ég að sjöttu hugmyndinni sem hv. þm. Frosti Sigurjónsson kom inn á en hún varðar sögulega umdeilt atriði sem er ríkisábyrgð á innstæðum hjá viðskiptabönkum. Ef maður spyr einhvern út í lagabókstafinn, hvort það sé ríkisábyrgð á innstæðum bankanna þá er það í sjálfu sér ekki þannig. Það er innstæðutryggingarsjóður sem er hugsaður til að standa undir útgreiðsluþörf bankanna þegar illa árar. Það er ekki ný saga úr hagfræðinni að þegar bankahrun eiga sér stað, og þau eru ekkert ný af nálinni heldur, það er mörg hundruð ára gamalt vandamál, þá sér ríkið sig knúið til að koma bönkunum til aðstoðar. Ég velti fyrir mér hvort sjö og hálf mínúta muni duga til að komast yfir allt sem er að þeirri pælingu. Hv. þm. Frosti Sigurjónsson sagði hér að hvort sem menn teldu að þessi ríkisábyrgð væri bein eða óbein þá væri hún óhjákvæmileg. Ég er hjartanlega sammála því, hún er algerlega óhjákvæmileg. Það hefur líka sitt að segja um hlutverk banka sem einkarekinna stofnana ef við erum búin að búa til kerfi sem er sérstaklega hannað til þess að bankar fari aldrei á hausinn, þá vakna siðferðilegar spurningar í sambandi við það hvert lögmæti einkarekinna banka sé þá yfir höfuð. Það er spurning sem ég ætla ekki að svara hér og kann ekki alveg að svara ef ég á að segja alveg eins og er en þarna er vissulega vandamál sem er alveg þess virði að ræða.
Til þess að koma til móts við það að það er með einhverjum hætti, óbeinum hætti venjulega, óhjákvæmilega ríkisábyrgð á viðskiptabönkum — ríkisfjármálin fara úr skorðum, þjóðfélagið fer úr skorðum ef það verður bankahrun — leggur hv. þingmaður til að bankar borgi ríkisábyrgðargjald og nefnir þar tölu, allt að 4% sem hann telur að geti aflað ríkinu allt að 16 milljarða á ári sem er ágætisupphæð til ýmissa góðra verka eða bara til að geta staðið undir hlutunum þegar illa fer. Mér þykir þetta mjög sjálfsögð krafa ef ég segi eins og er. Hvort sem fólki líkar það betur eða verr þá taka fjármálastofnanir áhættu fyrir hönd þjóðarinnar og það verður til áhætta þegar bankarnir stunda starfsemi sína vegna þess að þeir fara með það sem við getum kannski kallað loforð til einföldunar, loforð um að borga þessum og loforð um að borga öðrum o.s.frv. Þegar síðan stíflast lánalínur eða eitthvað kemur upp á, þá myndast stífla og keðjuverkun sem getur lagt allt í rúst. Það er kerfisáhætta sem lendir á þjóðinni og ríkissjóði. Mér þykir eðlilegt, af sömu ástæðum og mér þykir eðlilegt að borga tekjuskatt til að fjármagna heilbrigðiskerfið, að bankarnir fjármagni viðbragðsáætlanir um slíkt áfall og fjármagni hvernig eigi að takast á við það. Það er ekki einu sinni víst að 4% mundu duga til lengri tíma.
Þá koma auðvitað upp áhyggjur, þær sömu og koma upp þegar hugmynd vaknar um að láta fyrirtæki eða einhvern aðila borga eitthvað, um að kostnaðurinn lendi á viðskiptavinum. Það er sennilega alveg rétt. Og svar mitt við því er að það verður þá einfaldlega að hafa það. Við þurfum viðbragðsáætlun við bankahruni. Við getum ekki leyft okkur nokkurn tíma aftur það hugarfar sem ríkti fyrir bankahrun að ekkert gæti farið úrskeiðis. Þannig var hugarfarið, eins sturlað og það nú er. Sömuleiðis getum við ekki gefið okkur að við getum séð nákvæmlega fyrir hvað fari úrskeiðis því að það er ansi margt sem getur farið úrskeiðis í bankakerfinu þótt heildaryfirbragð bankanna sé yfirleitt svipað. Hvernig sem á það er litið þá er það svo að þegar bankakerfið stækkar þá stækkar ábyrgðin og sú ábyrgð lendir óhjákvæmilega á þjóðinni og ríkissjóði sérstaklega. Mér finnst þetta því góð hugmynd hjá hv. þingmanni og mundi styðja hana þrátt fyrir þá vankanta að auðvitað lendir kostnaðurinn einhvers staðar. Stundum er sagt að peningar séu ekki ókeypis og það er reyndar flóknari fullyrðing en í fyrstu sýnist en í grundvallaratriðum tel ég það samt rétt. Ef maður býr til ókeypis peninga þá rýrir maður verðmæti allra hinna, það er ekki alveg ókeypis, það borgar einhver. Burt séð frá því tel ég mikilvægt að eitthvað sé til staðar til að mæta því að bankakerfið klikki. Því að það mun klikka, eina spurningin er hvenær og hversu mikið. Stundum er ekki einu sinni erfitt að svara þeirri spurningu, það átti til dæmis ekki að vera erfitt að svara henni 2005 og 2006 og var ekki erfitt ef menn voru að fylgjast með.
Það eru þrjár mínútur eftir af þessari stuttu ræðu um þessi mál, þrjár mínútur til að ræða meginhugmyndina sem hv. þm. Frosti Sigurjónsson talar oft um, en hún er sú að hætta að fela bönkunum það verkefni að starfrækja hér gjaldmiðil. Það duga ekki þrjár mínútur til að segja allt sem segja má um það. En ég verð að segja það fyrir mig að ég er skeptískur á lausnina í þeim efnum hjá hv. þingmanni. Ég skil vandamálið sem hann bendir á, til að mynda það að bankarnir hafi nítjánfaldað fjármagn á ákveðnu tímabili sem hv. þingmaður talar um eins og sé sjálfkrafa vitfirrt. En það er ekki sjálfkrafa svo. Það kom í ljós að það var vitfirrt og það hefði átt að vera komið í ljós 2005, 2006 eða um það leyti vegna þess að þessi aukning á fjármagni átti sér stað í bankakerfinu. En þegar stórkostleg tækniframþróun verður er ekki auðvelt að sjá fyrir hversu mikið fé þarf inn í hagkerfið til að tákna eða „representa“, ég verð bara að nota það orð, virðulegi forseti, þá verðmætaaukningu sem á sér stað í samfélaginu. Þegar einhver finnur upp nýja tegund af skjá á snjallsíma eða þegar einhver finnur upp dróna eða einhver býr til internetið eða eitthvað því um líkt þá er ekki hægt að sjá fyrir hversu mikil verðmæti verða sköpuð í fyrirsjáanlegri framtíð í kringum það og þess vegna er ekki hægt að segja til um það fyrir fram hversu mikið fjármagn þurfi í hagkerfið. Illskásta leiðin til þess mundi ég halda að væri sú að peningaaukning væri í einhverju samhengi við væntingar, væntingar fólks, væntingar markaðarins, væntingar fjárfesta um fyrirséða verðmætaaukningu. Þá er stóri vandinn auðvitað sá hinn sami, að það er erfitt að sjá það fyrir þannig að fjárfestar gera mistök. Margir stórir fjárfestar gera mörg stór mistök á sama tíma og þá gerast óhjákvæmilega hlutir eins og dot.com-bólan sem sprakk 2001 og síðan bankahrunið þótt það hafi verið aðeins annars eðlis árið 2008. Það gerist þegar markaðurinn býr sér til væntingar sem eru óraunhæfar og skyndilega komast allir að sömu niðurstöðu á sama tíma um að þær séu óraunhæfar, allir hætta að taka þátt og hagkerfið fer í steik.
Ég get ekki séð að lausn hv. þingmanns á þessu meinta vandamáli að bankarnir búi til peninga takist í raun á við grunnvandamálið sem er spurningin: Hversu mikla peninga þarf að búa til? Hvar eiga þeir að verða til og hvernig eiga þeir að fara í umferð? Þeim spurningum finnst mér vera ósvarað og það eru grundvallarspurningarnar sem bankakerfinu, sem má bölsótast út í og ég get gert það eins og hver annar, er ætlað að leysa. Þá finnst mér slæmt þegar maður hefur þó reynslu af hlutum eins og bankahruni að búa til algerlega nýtt kerfi frá grunni sem enginn veit hvernig mun virka eða hvort mun virka frekar en reyna að læra af mistökunum, sem ég tel reyndar að við stöndum okkur ekki nóg vel í að gera, og halda áfram inn í framtíðina með lexíuna að leiðarljósi.