fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þetta góða svar. Mig langar til að vekja athygli á áliti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2014, en þar kemur fram að kvörtunum hjá embættinu hefur fjölgað úr 300 upp í 500 á ári þannig að það er gífurlegt álag á þessa litlu stofnun sem fer með afar mikilvægt vald í samfélaginu, eftirlitsvald, eftirlitshlutverk. Það kemur til dæmis fram að umboðsmaður hefur ekki fé til að sinna frumkvæðisathugunum sem eru náttúrlega og þurfa að vera grundvöllur fyrir starfi umboðsmanns Alþingis. En einnig segir í þessu áliti, með leyfi forseta:
„Í því sambandi var rætt um samhengi fjárveitinga til umboðsmanns og stöðu framkvæmdarvaldsins í tengslum við frumkvæðisathugun á lekamálinu svokallaða sem hafði grundvallaráhrif í stjórnsýslunni.“
Einnig segir að umboðsmaður þurfi að vera fjárhagslega sjálfstæður. (Forseti hringir.) Er það álit hv. þingmanns að það þurfi að gera betur við þær eftirlitsstofnanir sem við erum með (Forseti hringir.) eða er það kannski bara pólitískur vilji núverandi ráðamanna að grafa undan þeim?