fjárlög 2016.
Virðulegur forseti. Það er einfaldlega þannig að þau samfélög sem byggt hafa á brauðmolakenningunni eru samfélög sem eru miklu viðkvæmari fyrir efnahagsáföllum og þar sem alls kyns félagslegt misrétti er áberandi. Þau lönd sem hafa þvert á móti byggst á sterkri samneyslu, hafa lagt á skatta og hafa ókeypis almenna velferðarþjónustu heilbrigðis og mennta eru lönd eins og Norðurlöndin. Þau hafa reynst miklu þolbetri til að takast á við efnahagssveiflur. Þau hafa tryggt miklu betri samfélög, öruggari samfélög, samfélög þar sem fólk getur gengið að heilbrigði, menntun og öðrum grundvallarþáttum vísum. Það er enginn vafi að því fordæmi eigum við að fylgja en ekki brauðmolum.