145. löggjafarþing — 52. fundur,  11. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[23:37]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Frú forseti. Tími minn er byrjaður. Ef hæstv. forseti segir að hér skuli enn fundað þá tek ég til máls þó svo að ég hafi skilið það svo að samkomulag væri um fund til miðnættis. Við verðum bara að sjá hvernig tíminn endist.

Hæstv. forseti. Margir hv. þingmenn hafa gert það að umtalsefni hér við þessa umræðu hvernig vinna tengd fjárlagagerðinni hafi tafist og hvað hún hafi tekið langan tíma, jafnvel þannig að sumir hv. þingmenn eru farnir að tala um málþóf. Okkur greinir á um það. Það hefur ekki dugað að þingið hafi byrjað fyrr. Starfsáætlunin er öll úr skorðum. Það liggur alveg fyrir því að samkvæmt henni hefði átt að fresta þingi í dag en við erum greinilega þó nokkuð langan veg frá því.

Það hefur margt komið fram í 2. umr. um fjárlögin sem er ekki beinlínis til þess fallið að auka traust á fjárlagagerðinni eða fjárlagavinnunni. Bent hefur verið á að það sé hreinlega farið með rangt mál í nefndaráliti meiri hluta hv. fjárlaganefndar, að það hafi verið ákveðið af síðustu ríkisstjórn að lækka útvarpsgjaldið niður í 16.400 kr. Hið rétta er að sú ákvörðun var tekin við afgreiðslu frumvarps til laga um ýmsar forsendur fjárlaga fyrir árið 2014, sem var afgreitt frá Alþingi í desember 2013. Þetta hefur verið bent á og formaður hv. fjárlaganefndar þarf auðvitað að leiðrétta það. Varðandi útvarpsgjaldið þá hefur líka verið bent á að ekki hefur enn verið afgreidd frá ríkisstjórn tillaga hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra um að útvarpsgjaldið skuli vera óbreytt. Hér er því talsverð óvissa. Þá hefur einnig verið bent á það sem fram kom í gær að breytingartillaga upp á tæpa 1,2 milljarða hafi týnst eða farið forgörðum og ekki borist vegna kjarasamnings við kennara. Þetta er heldur ekki til að auka trú manns á ferlinu.

Við þessa umræðu rifjaðist upp fyrir mér atriði sem ég hafði spurt hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra út í við 1. umr. um fjárlögin. Það var um lið í fjárlögunum sem varðar bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð eða frekari uppbætur þar sem tölur í fjárlagaliðnum hrundu. Ég spurði hvort þetta gæti stafað af því að ekki hefði verið gert ráð fyrir því að hækka öll tekjuviðmið í bótaflokkum almannatrygginga þegar örorkubætur hefðu hækkað, en þá fékk ég þau svör að um mistök væri að ræða og þau yrðu leiðrétt fyrir 2. umr. fjárlaga. Það var svo sannarlega gert. Ég fann þetta í tillögum meiri hlutans þegar ég fór að leita eftir því. Þar segir að það séu breyttar forsendur sem séu samþykktar af ríkisstjórn og gerð hafi verið tillaga um leiðréttingu á fjárheimild liðarins. Í fjárlögum fyrir árið 2015 hefði 72 millj. kr. framlag verið veitt af útgjaldasvigrúmi ráðuneytisins til að breyta tekjuviðmiði fyrir frekari uppbætur á lífeyri. Tekjuviðmiðið hefði staðið óbreytt frá árinu 2010 en verið hækkað um 12,5% í ársbyrjun 2015 og fyrirhugað hefði verið að hækka viðmiðið enn frekar ef svigrúm gæfist til. Á yfirstandandi ári hefði viðmiðið ekki verið hækkað og áætlað væri að útgjöld liðarins yrðu um það bil 60 millj. kr. undir fjárheimildum ársins. Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2016 hefði liðurinn verið lækkaður fyrir mistök um þessar 60 millj. kr. sem hefði verið rangt í ljósi þess að um var að ræða ónýtt útgjaldasvigrúm en ekki kerfislæga þróun útgjalda.

Það er alltaf að tínast til eitthvað sem betur má fara. Það er kannski í sjálfu sér ekkert óeðlilegt með jafn risavaxin mál og eru í fjárlagafrumvarpinu. Það þarf að halda rosalega mörgu til haga. Ég velti fyrir mér í ljósi þess hvort það sé ekki eins gott að 2. umr. um fjárlögin standi í nokkurn tíma því að margt er að koma fram í dagsljósið í samtalinu sem á sér hérna stað og þess vegna þurfi hreinlega þessi umræða dálítið andrúm. Umræðan þarf að þroskast. Hlutir hafa verið að týnast og eru að koma inn. Mér finnst bara gott að þessi umræða taki svolítinn tíma.

Ég gerði í fyrstu ræðu minni í gær málefni fatlaðs fólks að umtalsefni og það sem fram kemur í að minnsta kosti tveimur nefndarálitum, þar sem talað er um að sveitarfélögin segi að það skorti fjármagn frá ríkinu vegna málaflokksins sem hafi reynst fjármagnsfrekari en gert var ráð fyrir við yfirfærslu frá ríki til sveitarfélaga. Þetta var í gær og þá velti ég því fyrir mér hvort von væri á breytingartillögum út af þessu fyrir 3. umr. fjárlaga. Svo gerðist það í dag að skrifað var undir samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga sem nefnist: Lokasamkomulag ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsramma þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Ég fagna því að þetta samkomulag hafi tekist í dag, enda er gríðarlega nauðsynlegt að vel sé búið að þessum málaflokki. Í samkomulaginu, sem er í sex greinum, segir í 6. og síðustu gr., með leyfi forseta:

„Fyrirvari um samþykki Alþingis.

Samkomulagið er gert með fyrirvara um að Alþingi samþykki nauðsynlegar lagabreytingar og breytingar á fjárlögum.“

Þetta hlýtur að þýða að það eigi eftir að verða einhver frekari breyting þar á. Eins og ég segi er eins gott að umræðunni var ekki lokið því að þetta er alveg gríðarlega mikilvægt mál. Aftur fagna ég því að þessi umræða taki svolítinn tíma því að hún skilar einhverju. Í þessu tilfelli skilar hún því að betur verður búið að fötluðu fólki í samfélaginu. Það tel ég auðvitað vera mjög gott.

Hæstv. forseti. Það er fleira sem fær mig til að hugsa um að það hafi kosti að þessi umræða hafi andrými því að fjárlögin eru alveg gríðarlega stórt mál. Ég hafði talsvert gaman af ræðu hv. þm. Páls Vals Björnssonar hér áðan þar sem hann fór yfir allra stærstu myndina því að í mínum huga eru fjárlög ekkert annað en eitt risavaxið samfélagsmál. Fjárlögin eru uppskriftin að því hvernig við ætlum að haga útgjaldahliðinni eftir því hvernig við rekum samfélagið. Stærri gerast málin auðvitað ekki.

Í ræðu minni í gær var ég aðallega að tala um það sem ég tel vera stóru málin þegar kemur að þessum málaflokki, en svo fékk ég spurningu í andsvari um mál sem ég verð að viðurkenna að ég hafði hreinlega ekki velt neitt sérstaklega mikið fyrir mér og það er málefni Þjóðskjalasafns Íslands. Í dag barst þingmönnum bréf frá stjórn Félags héraðsskjalavarða á Íslandi. Það er ýmislegt mjög merkilegt í því bréfi. Þar er rakið að fyrir liggi breytingartillaga frá meiri hluta fjárlaganefndar við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2016 um að húsnæði Þjóðskjalasafns Íslands verði selt en í staðinn keypt eða leigt annað hentugt húsnæði. Ég verð að viðurkenna að ég er enginn sérfræðingur í skjalamálum og mér fannst þetta bréf þess vegna mikilvægt. Það veitir mér ákveðna innsýn í þessi skjalamál, meiri en ég hafði í gær þegar ég var spurð út í málið því að hér er það rakið að húsnæði undir skjalasafn þurfi að hafa ákveðna kosti og flutningar fari ekki vel með skjöl. Við erum að tala um alveg rosalegt magn af skjölum, 42 hillukílómetra, segir í þessu bréfi, af skjölum sem mundu ná frá Aðalstræti í Reykjavík til Hveragerðis þannig að það er alveg risavaxið dæmi að flytja eitt svona safn. Í bréfinu kemur fram að ekkert kostnaðarmat hafi farið fram þegar litið er til leigu, byggingar, hönnunar eða kaupa á nýju húsnæði undir skjalasafnið. Jafnframt er bent á að frá því að hús Mjólkursamsölunnar var keypt árið 1985 liðu 13 ár þar til síðustu skjölin voru flutt úr safnahúsinu og í hið nýja þjóðskjalasafn. Eins og ég segi þá er ég enginn sérfræðingur í skjalamálum svo að ég tek mark á þessu bréfi. Það er nefnilega þannig með okkur þingmenn að þó svo við reynum, held ég, öll eftir bestu getu að vanda okkur í vinnunni þá vitum við ekki allt um alla hluti.

Við höfum dálítið rætt hérna um fundartíma Alþingis og sitt sýnist hverjum um næturfundi. Mér finnst mikilvægt, eins og þetta bréf sýnir, að gríðarlegur fjöldi fólks er alltaf að fylgjast með umræðunni hverju sinni sem sendir okkur viðbrögð. Við fáum fullt af bréfum frá almenningi, sem betur fer, sem hefur skoðun og þekkingu á málunum, jafnvel þekkingu sem við höfum ekki eða ég hef ekki sama hversu mikið ég reyni að vanda mig við vinnuna mína og lesa mér til. Mér finnst að við eigum að hafa þetta í huga. Við erum á Alþingi Íslendinga. Við eigum að hlusta á fólk og við eigum að halda fundina í dagsbirtu þegar fólk er vakandi og getur fylgst með störfum okkar. Ég er alveg til í að íhuga að halda fundina síðdegis eða á kvöldin því að þá hefur almenningur tíma til að fylgjast með störfum okkar.

Hæstv. forseti. Að öllu þessu sögðu fæ ég ekki betur séð en að annars vegar sé gott að fjárlagaumræðan taki dálítinn tíma vegna þess að ýmislegt hefur komið fram í umræðunni og hins vegar sýnist mér því miður, þrátt fyrir að þingið hafi byrjað snemma, ýmsu enn ólokið við fjárlagagerðina. Það er enn ýmislegt að koma fram sem er mikilvægt, eins og að standa við gerða kjarasamninga, sem þarf að halda til haga. Eins gerði ríkisstjórnin samkomulag við sveitarfélögin um málefni fatlaðs fólks í dag. Ég leyfi mér að vona að ríkisstjórnin eigi enn eftir að afgreiða frumvarp um að útvarpsgjaldið skuli vera óbreytt. Ég el þá von í brjósti að við eigum eftir að afgreiða betri fjárlög en lagt var upp með.

Mér fannst það mjög áhugavert sem kom fram í andsvari áðan þar sem hv. þm. Vigdís Hauksdóttir, formaður hv. fjárlaganefndar Alþingis, sagði að það hefði komið fram á fundi nefndarinnar að ríkisskattstjóri hefði sagt að 80 milljarðar, þ.e. einn Landspítali, væru sviknir undan skatti. Ég sé ekki betur en með þessum orðum hafi hv. formaður fjárlaganefndar sýnt fram á að breytingartillögur minni hlutans séu að fullu fjármagnaðar og gott betur en það þar sem hér er eingöngu verið að leggja til 4 milljarða sem eiga að fást með bættu skatteftirliti. Það ætti að vera hægt. Ef við göngum í það verk að innheimta þessa peninga þá ætti að vera hægt að fara í nauðsynlegar breytingar á fjárlögum. Það væri hægt að fjármagna kjarabætur til lífeyrisþega, svo dæmi sé tekið. Það væri hægt að gera alveg helling því að með góðri og sanngjarnri skattheimtu og góðu skatteftirliti er íslenskt samfélag þannig að okkur ætti ekki að vera neitt að vanbúnaði til að reka öflugt og gott velferðarsamfélag. Þetta snýst bara um að vilja reka samfélag jöfnuðar og velferðar. Við höfum öll tækin sem við þurfum. Við þurfum bara að gera svolitlar breytingar á fjárlögunum. Ég trúi því og treysti að við munum bera gæfu til að gera það.