fjárlög 2016.
Forseti. Ég vil í upphafi þessarar ræðu minnar vekja athygli þings og forseta á því að í gær var lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands á Alþingi er snertir fjárlög, fjárlagafrumvarpið og fjárlagagerðina heldur betur mikið. Í lagafrumvarpinu um breytingu á lögum um Seðlabanka varðandi stöðugleikaframlag og uppgjör við þrotabú segir, með leyfi forseta:
„Seðlabankinn skal stofna félag með þann tilgang að annast umsýslu og að fullnusta og selja eftir því sem við á mótteknar eignir […] aðrar en eignarhluti í fjármálafyrirtækjum og laust fé.“
Þetta þýðir með öðrum orðum að lagt er til að stofnað verði sérstakt félag af hálfu Seðlabankans sem fái það hlutverk að selja eignirnar sem stöðugleikaframlögin og þrotabú bankanna hafa samið við ríkið um að afhenda því til ráðstöfunar. Þetta er eitt af stærstu málum síðari tíma á Íslandi og hefur fengið heldur slaka umfjöllun, ef nokkra, í þinginu síðan þetta mál var lagt fram í gær. Einnig segir í lagafrumvarpinu sem ég reikna með að þurfi að afgreiða á þessu þingi eða fyrir jól, ég geri ekki ráð fyrir öðru, með leyfi forseta:
„Í frumvarpi til fjárlaga skal gerð grein fyrir áætlaðri meðferð og ráðstöfun verðmætanna.“ — Í fjárlögum hvers árs, og þá væntanlega í fjárlögum næsta árs ekki síst, verður sem sagt að vera til áætlun um hvað á að selja, hvernig á að selja það og hvernig á að ráðstafa verðmætunum, hvorki meira né minna. Við erum í 2. umr. fjárlaga að ræða fjárlagafrumvarp næsta árs án þess að þetta sé tekið hér inn, þ.e. ráðstöfun um áætlaða meðferð og ráðstöfun eigna sem þrotabú gömlu föllnu bankanna hafa ákveðið að afhenda stjórnvöldum. Ég er ekki viss um að allir átti sig á því um hvers konar risamál hér er að ræða sem við eigum samkvæmt þessu lagafrumvarpi, ef það er ætlunin að afgreiða það á þessu þingi, að taka inn í fjárlög næsta árs. Það verður þá væntanlega gert með einhverju hraði á milli 2. og 3. umr. nema það gerist, sem ég óska eftir að verði gert, að þessari umræðu hér, 2. umr. um fjárlög næsta árs, verði hætt, henni frestað, málinu vísað aftur inn til fjárlaganefndar til umfjöllunar til að klára þetta mál, fá á hreint hvort það sé í fyrsta lagi ætlunin að afgreiða þetta frumvarp um stöðugleikaframlagið og hvort þá sé ætlunin að taka þessar áætlanir og plön um ráðstöfun á eignunum inn í fjárlög næsta árs eins og kveðið er á um í frumvarpinu. Ég spyr hæstv. forseta hvort honum sé kunnugt um að til standi að afgreiða þetta frumvarp á yfirstandandi þingi, þ.e. fyrir jól, frumvarp um ráðstöfun á eignum þrotabúanna sem voru afhentar stjórnvöldum í tengslum við stöðugleikaframlagið í sumar.
Ég get ekki með nokkru móti séð hvernig við eigum að geta haldið áfram 2. umr. um fjárlög næsta árs án þess að fá þetta á hreint. Ég óska eftir því í fullri vinsemd við yfirstjórn þingsins, þingforseta, að úr því verði skorið hvort það sé meiningin með framlagningu þessa frumvarps að það verði afgreitt á þessu þingi. Sé það þannig er óhjákvæmilegt að 2. umr. um fjárlög næsta árs verði frestað og þetta frumvarp tekið til umræðu. Það verður þá að afgreiðast á undan fjárlagafrumvarpi en ekki eftir enda er ómögulegt að taka það inn í fjárlög næsta árs þegar búið er að afgreiða þau. Ég óska eftir því að hæstv. forseti afli upplýsinga um það hvort ætlunin sé að afgreiða fyrir jól þetta lagafrumvarp um ráðstöfun og sölu á eignum varðandi stöðugleikaframlagið og að ég fái svör við því hér eftir að ræðu minni er lokið.
Ég hef áður nefnt þá stöðu sem dregin er upp í fjárlagafrumvarpinu af nánustu framtíð, þ.e. hvert við erum að fara með ríkissjóð (Gripið fram í.) og í hvaða átt er verið að fara með ríkið. Í nefndaráliti meiri hlutans segir á fyrstu síðu að það standi ekki til og það sé reyndar langt í land með að hefja niðurgreiðslu skulda og vaxtakostnaðar, að menn spóli hér fastir fjórða árið í röð í þeirri von að ríkissjóður verði rekinn á núlli á næsta ári svo framarlega sem menn geti þá farið út í Landsbanka og náð í arð. Það er forsenda þess að ríkissjóður verði rekinn á núlli á næsta ári. Miðað við þau gögn sem liggja hér fyrir, miðað við fjárlagafrumvarpið og nefndarálit meiri hlutans liggur fyrir að ríkið verður ekki réttum megin við núllið á reglulegum rekstri heldur þurfi arðgreiðslu til. Það er lélegt. Það eru metnaðarlaus fjárlög að fjórða árið í röð, frá árinu 2013, og öll þau ár sem núverandi ríkisstjórn hefur verið, öll þrjú, skuli vera lagt fram fjárlagafrumvarp í þeirri von að af Landsbankanum komi arðgreiðslur sem sjái til þess að ríkið verði á endanum gert upp á núlli. Það er svakalega lélegt, alveg hrikalega lélegt.
Í þessu skjali, frumvarpi til fjárlaga, Stefnu og horfum, sem er aðalplaggið og menn eiga að lesa, ég hvet þingmenn til að lesa það vel og vandlega, segir til um það hver stefnan er og hvaða plön hægri flokkarnir hafa uppi með rekstur ríkissjóðs. Ekki er dregin upp góð mynd af því. Á bls. 71 og 72 eru ágæt yfirlit yfir áætlaðar frumtekjur og frumgjöld á næstu árum, þ.e. tekjur af rekstri, hvað er eftir til rekstrar og þá gjöldin sem skipta ekki minnstu máli.
Horfurnar í línuritum og töflum sem eru lögð fram af stjórnarmeirihlutanum segja okkur að gert sé ráð fyrir því að frumgjöld ríkissjóðs á næstu árum fari ofan í 25%, jafnvel neðar. Þá erum við komin svo langt í órafjarlægð frá þeim löndum sem við höfum viljað miða okkur við, Norðurlöndunum, velferðarþjóðfélögum, að við munum ekki nálgast þau aftur í nánustu framtíð. Þá erum við farin að nálgast lönd sem við höfum aldrei borið okkur saman við á Íslandi, hvorki við rekstur menntastofnana, heilbrigðisstofnana né velferðarkerfis.
Í Stefnu og horfum ríkisstjórnarinnar sem lögð er fram með þessu fjárlagafrumvarpi kemur þetta mjög skýrt fram. Þar er hægt að teikna þetta upp. Ég hvet fólk til að lesa til dæmis á bls. 43–45 þar sem farið er yfir áætlaðar horfur í máli, tölfræði og töflum. Það markmið hvílir á stefnunni að frumtekjur ríkissjóðs án óreglulegra liða haldist nánast óbreyttar, hækki að minnsta kosti ekki, en frumgjöld án óreglulegra liða vaxi hægar, þ.e. útgjöld. Það dregur á milli þjóðarframleiðslunnar, vergrar landsframleiðslu, og þeirra útgjalda sem við ætlum til rekstursins. Þá gætum við farið að hætta að tala um að hér eigi að fara að reka eitthvert velferðarþjóðfélag. Þá getum við farið að hætta að tala um að hér eigi að fara að reka ríkissjóð á núlli. Það verður ekki. Það er langur vegur frá því. Það er rétt sem kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans, ekkert bendir til þess að það sé að fara að gerast. Það er langt í land með það, segir meiri hluti fjárlaganefndar, að það verði farið að greiða niður skuldir hér á landi miðað við fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp og miðað við stefnu og horfur þessarar ríkisstjórnar. Það verða margir hættir á þingi áður en sá dagur rennur upp að ríkissjóður verði rekinn þannig að hægt verði að greiða niður skuldir.
Að lokum ítreka ég þá beiðni mína, virðulegi forseti, að ég fái svör við því hvort til standi að afgreiða lagafrumvarp (Forseti hringir.) um breytingu á lögum um Seðlabankann varðandi stöðugleikaframlagið á þessu þingi og ég fái svör við því fljótlega eftir að ræðu minni lýkur.