fjárlög 2016.
Herra forseti. Ég kem til að taka undir þær óskir að hæstv. fjármálaráðherra komi til umræðunnar og/eða að henni verði frestað og fjárlaganefnd geti þá dregið saman upplýsingar um þær sviptingar allar sem hér eru að verða á lokametrum 2. umr.
Fyrir tveim dögum eða svo uppgötvaðist að menn höfðu einhvern veginn gleymt 1,2 milljörðum vegna áhrifa kjarasamninga á laun kennara. Í gær bárust fréttir af því að fjármálaráðherra hefði, sem er ánægjulegt, undirritað samkomulag við sveitarfélögin um fjárveitingar til málefna fatlaðra en það er jafnframt upplýst að um 1,5 milljarðar renni í viðbót til málaflokksins og það er á kostnað tekna ríkisins, þ.e. þetta er gert með því að hækka það hlutfall af skatttekjum sem renna til jöfnunarsjóðs.
Út af standa enn mál eins og Ríkisútvarpið og stríð ríkisstjórnarinnar við aldraða og öryrkja. Svo kemur frumvarp sem boðar umsýslu um tugmilljarða ef ekki hundraða milljarða eigna og við hljótum að (Forseti hringir.) þurfa að fá skýringar á því hvernig þetta komi inn í fjárlög næsta árs. Fjármálaráðherra einn getur væntanlega best gefið yfirlit yfir það eða þá að nefndin fái tíma til að fjalla um stöðuna og skila framhaldsnefndaráliti.