145. löggjafarþing — 53. fundur,  12. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[11:32]
Horfa

Óttarr Proppé (Bf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég verð að taka undir með öðrum sem hafa rætt hér málin. Það er alveg stórmerkilegt hversu miklar breytingar virðast vera gerðar á fjárlagafrumvarpinu. Vandræðagangurinn byrjaði auðvitað með þeim mörgu dögum sem tók að koma saman breytingartillögum fyrir 2. umr. og það heldur áfram, stórar fréttir um breytingar á fjárlögunum eru að koma inn meðan á umræðunni stendur.

Ég held að það sé mikilvægt að við lítum ekki á ræðustól Alþingis sem einhvers konar aukaatriði. Ræður sem eru haldnar hér eru haldnar um málið sem liggur fyrir og við þingmenn höldum ræður í ræðustól Alþingis vegna þess að þær eiga að skipta máli, ekki bara til að leyfa klukkunni að tikka.

Ég verð því að taka undir með öðrum, ég held að það sé tímabært (Forseti hringir.) að gera örlítið hlé á þessari umræðu meðan við erum að skýra um hvað við erum að ræða. Við höldum ræðurnar um það.