145. löggjafarþing — 53. fundur,  12. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[11:42]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseta þykir mjög leitt að boðið hafi farið fram hjá hv. þingmanni. Forseti greindi fulltrúum allra þingflokka í gærkvöldi frá þeirri ákvörðun hans, forsetans, að boða til fundar í dag. Að því búnu voru sendir tölvupóstar á alla þingmenn og raunar alla starfsmenn Alþingis. Síðan var það tilkynnt á vef þingsins. Forseti ítrekar að honum þykir leitt ef boðið hefur farið fram hjá hv. þingmanni eða öðrum þeim sem þurftu þessar upplýsingar.