145. löggjafarþing — 53. fundur,  12. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[11:44]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Svarið við þessu getur verið stutt. Hv. þingmaður á að vera hér samkvæmt þessum lögum. Þarna er vísað til þessarar viku og það er það sem forseti vísaði til. Þótt forseti sé allur af vilja gerður að reyna að koma til móts við sjónarmið þingmanna telur hann sig bundinn af því að fylgja þessum lögum og reglum.

Hv. þingmaður er meira en velkominn hér. Hann er í embætti sínu sem varaþingmaður og vitaskuld með full þingmannsréttindi sem slíkur.