145. löggjafarþing — 53. fundur,  12. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[12:23]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill bara árétta að hér hefur verið fylgt í hvívetna lögum og reglum sem um þessi mál gilda. Forseti hefur reynt að athuga hvort dæmi séu til um það að brugðið hafi verið út frá þeirri reglu sem hér er verið að framfylgja. Samkvæmt þeim upplýsingum sem forseti hefur aflað sér finnast engin slík dæmi þannig að þessi regla er býsna skýr og hefur í rauninni ekki verið talið tilefni til þess að gera athugasemdir við hana fram að þessu.