145. löggjafarþing — 53. fundur,  12. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[15:47]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að biðjast afsökunar á því að hafa ætlað hæstv. forsætisráðherra það að hafa sett inn þessar skilyrðingar ef það er meiri hluti fjárlaganefndar sem gerði það. Rétt skal vera rétt í því og ég þakka bara fyrir þær upplýsingar. Ég bíð náttúrlega eftir svari um þetta kostnaðarmódel, hvernig við getum passað sem best upp á að spítalinn fái það sem hann þarf út af því að nú vitum við að það er meira álag, sjúklingar eru fleiri, þyngslin eru meiri og við verðum auðvitað að borga fyrir það. Við getum ekki ætlast til þess að finna út úr þessu með því bara að láta fólk einhvern veginn lifa á loftinu þarna.

Annað sem mig langar að nefna í fjárlagafrumvarpinu er þessi sérstaka norðvesturnefnd sem var sett á fót til þess að efla hag þess hluta landsins í fjárlagafrumvarpinu. Það er allt gott og blessað með það að styðja við byggðir. En ég spyr mig um þá aðferðafræði við að færa þeim parti landsins um 250 milljónir eftir því sem okkur reiknast til þegar óljóst er hvað hinir partarnir eiga að fá, því að við eða þeir sem hér hafa setið lengur vorum með þetta í ágætum farvegi að ég tel sem heitir sóknaráætlun landshluta. Þar voru landshlutarnir allir, fólkið þar og sveitarfélögin þar inni, þurftu að forgangsraða hjá sér og sækja inn í ríkissjóð til þess að efla sínar byggðir. Hvernig stendur á því að í þessu fjárlagafrumvarpi er einum parti gert svona hátt undir höfði en öðrum ekki?