145. löggjafarþing — 53. fundur,  12. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[17:09]
Horfa

Ásta Guðrún Helgadóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þessa spurningu. Til að drepa aðeins á fyrri hluta spurningarinnar er náttúrlega líka spurning hversu mikið er nóg. Hvenær er til dæmis komið nóg af viðbyggingum á Alþingisreitinn? Hvenær eigum við að sætta okkur við að þessi pínulitli reitur sé búinn að þjóna tilgangi sínum í bráðum eina og hálfa öld? Kannski er kominn tími til að færa Alþingi á einhvern annan reit. Kannski er kominn tími til að við byggjum nýtt 21. aldar þinghús samhliða nýrri stjórnarskrá og nýrri pólitík sem gæti kannski verið táknræn bylting í íslenskum stjórnmálum, að við mundum vígja nýtt þinghús og nýtt lýðræði í raun og veru.

Samhliða því held ég að það sem hv. þingmaður minntist á, opið og gagnsætt bókhald, sé líka hluti af 21. aldar lýðræðinu. Það að við höfum upplýsingar um það hvernig sameiginlegum fjármunum okkar er varið er lykilatriði til að hafa aðhald með ríkinu. Það er grundvallaratriði fyrir lýðræðið. Mér finnst að við eigum að horfa svolítið til þess sem er búið að vera að gera í Bretlandi. Þar eru öll hrágögn sett fram á svokölluðum CSV-skrám eða XML-skrám svo ég tali í skammstöfunum eins og góður tölvunörd. Þar er margvíslegt í gangi. Það er svo mikilvægt að þetta sé gefið út á þessu formi og að það séu ákveðnir staðlar yfir þetta. Það er verið að vinna í því. Það er til nokkuð sem heitir „Open Government Partnership“ sem er verkefni sem Ísland tekur ekki þátt í, en önnur lönd í Evrópu taka þátt í þessu, m.a. Bretland. Þetta veitir aðhald í því að byggja upp opið bókhald og opna fjársýslu í raun og veru fyrir ríkið. Því miður tökum við ekki þátt í þessu verkefni því að ég held að það mundi hjálpa okkur mjög.