145. löggjafarþing — 53. fundur,  12. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[17:38]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Meðan hv. þingmaður var að fara yfir þetta varð mér hugsað til þess að í aðra röndina eru menn með metnað og reyna að sníða kerfið þannig að fólk fari frekar hraðar í gegn en hitt, en á sama tíma erum við með námslánakerfi sem býður í raun og veru ekki upp á það.

Ég held að það sé úttektarvirði fyrir stjórnvöld að fara í gegnum það hvar þetta fólk er sem var á námslánum og er að detta út núna. Er þetta aðeins það að það varð svo mikil fjölgun eftir hrun? Ef svo er þurfum við líka að fara vandlega í gegnum það hvað varð síðan um það fólk.

Ég held að hv. þingmaður hafi spurt ákveðinna lykilspurninga vegna þess að við erum hér og nú að garfa í þessum fjárlögum og inni í fjárlögunum eru alls konar atriði sem geta haft áhrif inn í svo langa framtíð og á samfélagsþróunina hér á landi. Þetta er eitt af þeim atriðum, þ.e. hvernig áhrif fjárlögin hafa á ungt fólk. Ég held að hv. þingmaður hafi komið inn á lykilþætti í því sem þarf að skoða.

Aftur að húsnæðismálunum af því að ég hafði svo lítinn tíma áðan. Það er bara þannig að við erum núna með ríkisstjórn sem setti á laggirnar sérstakan ráðherra húsnæðismála af því að áherslan á þau mál átti að vera svo mikil. En það hefur ekkert skilað sér, ekki neitt, og maður veltir fyrir sér hvers vegna. Getur það verið vegna þess að menn eru kannski að átta sig á því í fyrsta lagi að gjaldmiðillinn sem við notum er ekki heppilegur? Í öðru lagi geta menn verið að átta sig á því að þetta gæti kostað fjármuni fyrir hið opinbera.

Ég segi fyrir okkar leyti í Samfylkingunni að við erum tilbúin til þess að horfa til útgjalda (Forseti hringir.) til að reyna að koma af stað almennilegum leigumarkaði. Ef það er það sem þarf þá eigum við að gera það, af því að staðan núna er óviðunandi.