brottvísun tveggja albanskra fjölskyldna.
Hæstv. forseti. Ég get með engum hætti úttalað mig um slíka hluti hér í dag. Aðalatriðið er að okkur ber að sjálfsögðu skylda til þess að fara að þeim reglum sem gilda á hverjum tíma, á sama tíma þurfum við að vera viss um að það sé gert með réttum hætti og það skiptir auðvitað máli. Síðan verðum við að líta til þess hvort reglurnar nái markmiðum okkar sem hlýtur að vera það sem þetta snýst allt um.
Ég held að í þessu tilliti, og ég held að við höfum séð það margsinnis að undanförnu og við munum sjá meira af því í framtíðinni af því að þetta er málaflokkur sem er mjög mikið á iði núna, við vitum það eins og ástandið er, sé mjög mikilvægt að Alþingi sé hluti af því öllu. Ég hef þess vegna óskað eftir því við forseta Alþingis að ég fái að flytja munnlega skýrslu um þessi mál. Ég vonast til þess að það geti orðið í lok vikunnar, ég geri frekar ráð fyrir því að þingið muni sitja fram eftir vikunni. Alþingi sjálft láti þannig rödd sína koma fram, en við erum auðvitað alltaf að vinna á grundvelli gildandi laga sem Alþingi hefur sett og okkur ber að framfylgja.