fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Ég á góða vinkonu sem er fötluð og hún hefur sagt mér hvernig hennar umhverfi í þessu er. Eftir að hún fór að lýsa því fyrir mér og svipta hulunni af einhverjum aðstæðum sem maður þekkir ekki sjálfur hallast ég að því að NPA sé sú leið sem við verðum að fara ef við ætlum að tryggja fólki réttindi og líf með reisn. Eitt dæmi er að viðkomandi reynir að vinna eitthvað pínulítið, bæði til að afla sér tekna en líka til að styrkja sig sem manneskju, en síðan þarf hún á heimilishjálp að halda. Hún veit aldrei nákvæmlega hvenær heimilishjálpin kemur þannig að bara út af þessum atriðum verður hún svo ófrjáls. Kerfið virðir ekki tíma þessara einstaklinga, það er litið svo á að þau geti beðið í tvo tíma, þrjá tíma, fjóra tíma, stundum klukkutíma og stundum hálftíma eftir því að fólk standi við tímaáætlanir.
Það er ýmislegt í þessu. Við yrðum alveg sjóðandi vitlaus ef við lentum í þessu einu sinni í viku. Fólki finnst þetta kannski hljóma sem eitthvert smotterí, en þetta er stórmál. Þetta er spurning um hvernig við virðum þetta fólk og tíma þess.
Já, við horfum alltaf í kostnaðarliðinn, en eru menn búnir að netta þetta þannig að þeir taki líka á móti hvaða framlag við getum fengið frá þessum einstaklingum ef þeir fá þessa þjónustu? Þarna eru stórir hópar einstaklinga sem geta skilað okkur miklum verðmætum ef þeir fá tækifæri til þess.