145. löggjafarþing — 54. fundur,  14. des. 2015.

lengd þingfundar.

[15:11]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Einhver talaði um toppara. Mér dettur í hug floppari, svo ég gerist álíka fyndin og síðasti ræðumaður.

Mig langar að segja að nú er staðan sú, alþjóð til upplýsinga, að við þingflokksformenn hittumst á Alþingi á laugardaginn var. Hv. þingflokksformenn meiri hlutans ætluðu að kalla okkur til fundar seinni hluta dagsins í dag og koma þá væntanlega til baka með einhverjar upplýsingar um stöðuna, um þá pólitísku stöðu sem upp er komin, en ég heyri það á bæði formanni þingflokks Framsóknarflokksins og forsætisráðherra að þeir ætla að bíða með að kalla okkur á þennan fund af því að þeim finnst svo mikilvægt að klára hér einhver heimsmet, en það er ekki í fyrsta skipti úr þessum ranni.