145. löggjafarþing — 54. fundur,  14. des. 2015.

lengd þingfundar.

[15:26]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég hef enn ekki skilið neina ræðu hér þannig að ætlast sé til atkvæðagreiðslu um málið. Umræðan hófst á því að ekki væri óskað eftir atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar, að þingmenn væru reiðubúnir til að vera hér fram eftir kvöldi og nóttu. Ég ítreka það sem kom reyndar fram í seinustu ræðu, að það er ekki löng mælendaskrá.