145. löggjafarþing — 54. fundur,  14. des. 2015.

lengd þingfundar.

[15:27]
Horfa

utanríkisráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Bara til að taka af allan vafa kallaði ég hér fram í áðan að ég óskaði eftir því að greidd yrðu atkvæði um lengd þingfundar þannig að hann geti örugglega staðið til morguns. Ég bara verð því miður að viðurkenna að reynsla mín af þessari stjórnarandstöðu er þannig að það er ekki hægt að treysta orðum hennar.