lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Mér finnst eiginlega alveg met hvað hæstv. forsætisráðherra og fleiri hv. þingmönnum stjórnarliðsins er annt um að mæla út og tala um met. Sá sem hér stendur var ekki á þingi veturinn 2012. Við ræðum hér um fjárlög íslenska ríkisins fyrir árið 2016 og árið er 2015, þannig að ég held að við ættum að hafa athyglina á þeirri umræðu sem er í gangi hérna en ekki endalaust að eyða kröftum í að mæla hana út við eitt eða annað.
Við í Bjartri framtíð höfum haldið hér nokkrar innihaldsmiklar og frábærar ræður um fjárlögin 2016. Við teljum það skyldu okkar að koma inn í þetta mikilvægasta þingmál vetrarins og að hæstv. forsætisráðherra komi hér upp og kalli það málþóf þykir mér mjög sorglegt.