145. löggjafarþing — 54. fundur,  14. des. 2015.

lengd þingfundar.

[15:39]
Horfa

Ásta Guðrún Helgadóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Mér þykir ekki vera góður bragur á allri þessari umræðu. Allt tal um málþóf þykir mér eiginlega fyrir neðan allar hellur. Þetta er fyrsta fjárlagaumræðan sem ég tek þátt í, en ég bjóst við því að hún yrði eins og hún hefur verið, þannig lagað séð, en þær deilur sem eiga sér stað hér, sá titringur sem virðist vera á milli stjórnarflokkanna minnir mig helst á skilnaðarbarn. Það er bara þannig.

Mér finnst allt í lagi að fólk fari aðeins að tala saman, það er ekki eins og það sé það erfitt. Og, já, við erum kannski ósammála um ÞSSÍ af hugmyndafræðilegum ástæðum, en þá þarf líka að ræða það. Sömuleiðis er allt í lagi að ræða þessi blessuðu fjárlög, það er ekki eins og það sé hundrað í hættunni að ræða þau.