145. löggjafarþing — 54. fundur,  14. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[17:23]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Samfylkingin hélt sérstakan fagnaðarfund, fagnaðarsamkomu á Rauða ljóninu þegar breski Verkamannaflokkurinn vann kosninguna á sínum tíma þegar Tony Blair og Gordon Brown voru kosnir þannig að ég get auðveldlega dregið þá ályktun að allt það sem þeir slæmu stjórnmálamenn og þá sérstaklega þessi hörmulegi stjórnmálamaður Gordon Brown hafa gert sé með velvild hv. þingmanns og Samfylkingarinnar. Mér fannst margt vera málefnalegt í ræðu hv. þingmanns, en mér finnst það að segja að hæstv. fjármálaráðherra sé í herferð þegar hann hefur beitt sér fyrir hækkun á bótum til lífeyristrygginga með þeim hætti sem hann hefur gert í besta falli mjög ósanngjarnt og tölurnar tala sínu máli. Menn geta leikið sér eins og þeir vilja með það, en þetta er 27 milljarða hækkun á ári, 22 milljarða kr. uppsöfnuð hækkun sérstaklega út af ákvörðun ríkisstjórnarinnar.

Mér fannst ekki vera nægilega skýrt hjá hv. þingmanni varðandi samspil bóta og lágmarkslauna, hann segir að bilið megi ekki vera of mikið, ef hann getur farið aðeins betur í það og einnig ef hv. þingmaður getur svarað því hvort hann sé á móti einkarekstri í heilbrigðisþjónustunni.