fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Nú hef ég starfað með hv. þm. Kristjáni L. Möller í nokkurn tíma og hann á sín mörgu andlit. (Gripið fram í.) Hann á sér mörg andlit og núna sýndi hann popúlíska andlitið. Ég ætla það ekki eina stutta stund að hv. þm. Kristján L. Möller hafi verið að meina það sem hann sagði, því að hv. þingmaður veit nákvæmlega að það hefur verið forgangsraðað í þágu þessara málaflokka í tíð þessarar ríkisstjórnar. Hv. þingmaður var í síðustu ríkisstjórn þar sem þurfti að spara, það er alveg rétt, en hann veit líka að það er ekki með neinu móti hægt að segja að þar hafi verið forgangsraðað í þágu heilbrigðisþjónustu.
Ég er hérna með svar við fyrirspurn minni um þróun starfsmanna. Við bentum margir á það á síðasta kjörtímabili að þótt það þyrfti að spara væri gengið helst til langt þegar kom að heilbrigðismálum. Sparnaðurinn væri nær eingöngu þar. Þegar kom að fækkun ríkisstarfsmanna var meiri hluti þeirra ríkisstarfsmanna sem misstu störfin í heilbrigðisþjónustunni og sérstaklega á Landspítalanum. Nú kynni einhver að segja: Var þetta ekki alls staðar? Nei, virðulegi forseti, því að það var fjölgað í utanríkisþjónustunni. Það var fjölgað í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, undir þeim stofnunum.
Það er allt í lagi að koma hér og segja að það megi gera betur og að menn þurfi að huga að einhverjum hlutum, því að það þarf auðvitað að gera, menn hafa ekki náð neinni fullkomnun í þessu. En þegar menn fara af stað með gassagangi eins og hv. þm. Kristján L. Möller gerir, nýkominn úr ríkisstjórn sem hagaði sér á þann hátt sem tölurnar sýna að hún gerði, þá geri ég, virðulegi forseti, nákvæmlega ekkert með það.