fjárlög 2016.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er nefnilega málið, eins og við fórum ítarlega yfir þegar skuldaniðurfellingin var tekin fyrir. Þegar ég var í kosningabaráttunni þá lýstum við því yfir að við vildum ræða það hvaða hópar sætu eftir, þ.e. eftir síðasta kjörtímabil á nýju kjörtímabili. Við vildum skoða það nánar en ekki taka yfir allt og alla þannig að þeir sem raunverulega þyrftu á því að halda fengju leiðréttingu og það er, eins og hv. þingmaður segir, fyrst og fremst þetta unga barnafólk.
Tveimur og hálfu ári síðar, þrátt fyrir 80 milljarða niðurfellingu, stöndum við frammi fyrir því að stór hópur af þessu fólki, ungu fólki með börn, stendur ekki nægjanlega vel. Það er ekki ásættanlegt en það er ekki hægt að alhæfa í þessu frekar en í öllu öðru.
Mér þykir það miður þegar stjórnarliðar halda því fram að vaxtabætur lækki líka vegna þess að skuldaniðurfærslan hafi gengið svo vel, að það hafi bjargað þessu. Það gleymist alfarið að taka hækkun fasteignamats þar inn í. Það á auðvitað ekki við alls staðar, svo að það sé sagt. Við megum ekki gleyma því að það er líka dýrt að vera með börn á leikskóla í hinum dreifðu byggðum, það kostar ekkert minna þar, en þar eru tekjur á mörgum stöðum mun lægri og tækifæri til atvinnu færri, þannig að ég sé mikið eftir því að verið sé að taka þessa miklu fjármuni inn í ríkissjóð aftur í staðinn fyrir að deila þeim út til þessara hópa.