145. löggjafarþing — 54. fundur,  14. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[21:08]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þreytist ekki á því að nefna að hæstv. fjármálaráðherra vildi fyrir kosningar sjálfur afnema tekjutengingar ellilífeyris, enda frekar augljóst réttlætismál þar í gangi.

Mér þykir áhugaverð orðræðan um hvata og refsingu, vegna þess að hvatinn, eins og ég skil hæstv. ríkisstjórn og sér í lagi hæstv. fjármálaráðherra, felst í því að ef einhver gerir ekki eitthvað verður honum refsað með einhverjum hætti á meðan raunverulegur hvati er gulrót en ekki hafnarboltakylfa, svo við fáum lánað orðalag úr annarri ágætri umræðu. Þá þykir mér líka mikilvægt að hafa í huga að öryrkjar og ellilífeyrisþegar, jafnvel þeir sem geta unnið einhver störf, eru samt alltaf í verri stöðu en allir hinir varðandi til dæmis atvinnuöryggi og tækifæri. Ég veit um dæmi um fólk sem er afskaplega einhverft en getur tekið að sér einstaka verkefni með glæsibrag og skilað glæsilegum niðurstöðum en það er háð því að það sé rétt tegund af vinnu.

Ef maður er háður því að vinna við eitthvað eitt hefur maður takmarkaðra val þegar kemur að vinnu en sá sem getur tekið að sér miklu fjölbreyttari störf. Fólk sem er á örorku er í þeirri stöðu af einhverri ástæðu, og jafnvel þótt það reynist vinnufært til einhvers ákveðins verks og geti fengið þar full laun þá þykir mér alveg eðlilegt og réttlátt að það fái örorkubætur ofan á þau laun vegna þess að það fólk er líklegra til að missa vinnuna, hafa vinnuna skemur og minna þarf að fara úrskeiðis.

Ég sé þetta ekki sem spurningu um að hækka einhver mörk heldur þá staðreynd að ef maður er á örorku er maður á örorku og það felur í sér ákveðna skerðingu á lífsgæðum sem mér þykir sjálfsagt að fólk fái bætur fyrir, en sömuleiðis finnst mér sjálfsagt að fólk fái að njóta fullra launa við þá vinnu (Forseti hringir.) sem það getur þó innt af hendi.