145. löggjafarþing — 54. fundur,  14. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[21:30]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég ætla aðeins að koma inn í þá efnislegu umræðu sem er undir liðnum um fundarstjórn forseta og lýsa aðdáun minni á fundarstjórn forseta sem er búin að vera hreint til fyrirmyndar. Það er vandratað að hleypa þingmönnum ekki í efnislega umræðu þegar svo er, en ég ætla hins vegar að lýsa ánægju minni með það hversu vel umræðan gengur og ég hlakka til að sjá hana klárast þegar kemur fram á nóttina. (KLM: … í ræðu?) Ég brýni forseta til að halda hér áfram fundi drykklanga stund (Gripið fram í.) þannig að við getum klárað þessa góðu umræðu hér í nótt. (Gripið fram í: Ræðu!)