fjárlög 2016.
Forseti. Mig langaði líka að fá upplýsingar um hve lengi þingfundur á að standa. Mér er svo sem alveg sama hvað hann verður lengi, ég vildi bara fá upplýsingar um það hversu lengi forseti hyggst halda fund í nótt.
Við höfum rætt um það, þingmenn minni hlutans, að þær ræður sem fluttar verða eftir miðnætti verði síðan fluttar aftur á morgun þannig að almenningur fái tækifæri til að fylgjast með umræðum á Alþingi. Ég held að það séu ákaflega fáir sem eru að fylgjast með alþingisrásinni eftir miðnætti.
Þá langar mig jafnframt að taka undir orð hv. þingmanns og þingflokksformanns Samfylkingarinnar, Helga Hjörvars, um að það væri góður bragur á því að gefa fjárlaganefnd tækifæri til að sníða af alla vankantana sem eru á þeim breytingum sem gerðar voru á fjárlagafrumvarpinu í fjármálaráðuneytinu.