fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Ég var nú ekki stödd hér þegar hæstv. forsætisráðherra ákvað að taka snúning í dag, en ég skildi ekki skilaboðin frá honum öðruvísi en svo að hann teldi að þær tillögur sem við vorum hér að leggja fram væru eitthvað sérstaklega fyrir okkur. Við höfum barist fyrir því að eldri borgarar og öryrkjar fái sambærilegar kjarabætur og aðrir á vinnumarkaði. Það er ekkert verið að bjóða okkur neitt hér. Við erum hér að berjast fyrir þennan hóp. Og þegar hæstv. forsætisráðherra talar með þeim hætti sem hann gerði í dag er hann í raun og veru að svara þessum fólki og segja að það muni ekki fá neitt. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að menn ætli í alvörunni að fara inn í jólin og skilja eldri borgara og öryrkja eftir þegar kemur að kjarabótum á þessu ári.
Við í stjórnarandstöðunni munum gefa þingmönnum stjórnarflokkanna annað tækifæri til að styðja tillögu um að þessir hópar fái afturvirkar kjarabætur.