145. löggjafarþing — 54. fundur,  14. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[23:32]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Forseti. Það var þannig í vor sem leið að illa gekk að ná saman niðurstöðu um þinglok. Það var vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn kom að borðinu og lauk samningum. Svo liðu tíu dagar þar sem Framsóknarflokkurinn neitaði að tala við nokkurn mann og var í miklum vandræðum með sinn heimavöll þegar loks tókst að hnýta saman þinglok.

Ég velti fyrir mér hvort hið mikla bræðikast forsætisráðherrans í dag og sú mikla vanstilling hafi í raun og veru snúist um að hann hafi alls ekkert verið að tala við stjórnarandstöðuna heldur hafi hann einmitt verið að tala við Sjálfstæðisflokkinn og segja honum að ekki verði samið um Ríkisútvarpið, að ekki verði settir peningar í Landspítalann, að ekkert verði gert fyrir öryrkja og aldraða. Var hæstv. forsætisráðherra að tala við Sjálfstæðisflokkinn, við samstarfsflokkinn? Vegna þess að það hljóta að vera einhverjar — eða vonandi eru einhverjar pólitískar skýringar á þeirri vanstillingu sem kom fram hjá ráðherranum í dag.