145. löggjafarþing — 54. fundur,  15. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[00:03]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka svarið. Mig langar að spyrja, af því að hv. þingmaður hefur töluvert meiri þingreynslu en ég, hvort hann kannist við að formaður fjárlaganefndar atyrðist svo út í forsvarsmenn Landspítalans eða forsvarsmenn annarra mikilvægra opinberra stofnana eins og átti sér stað fyrr í þessum mánuði. Það kom mér verulega á óvart, verð ég að segja, hvernig formaður fjárlaganefndar talaði um forsvarsmenn Landspítalans. Mig langar að spyrja hvort hv. þingmaður kannist við sambærilega viðburði hér í hv. þingi.