145. löggjafarþing — 54. fundur,  15. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[00:22]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Mig langar líka að fá upplýsingar um það hve lengi forseti hyggst hafa þingfundinn í nótt. Ég hef ekkert á móti því að vera hér í nótt. Ég vil bara fá að vita hversu lengi fundur á að standa sem er afskaplega eðlileg krafa á hvaða vinnustað sem er. Ég greiddi atkvæði með kvöldfundi og fór í raun og veru ekki fram á, hvað þá nokkur einasti þingmaður í minni hlutanum, að það væri efnt til atkvæðagreiðslu um þennan fund í nótt, en mér finnst alveg sjálfsagt að forseti upplýsi hve lengi fundurinn á að standa.