145. löggjafarþing — 54. fundur,  15. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[01:43]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek undir þær óskir að hæstv. heilbrigðisráðherra komi hingað og að við fáum upplýsingar um hvort ekki megi vænta komu hans. Ég vil hins vegar koma hæstv. utanríkisráðherra til varnar og tel mikinn feng í því að hann skuli vera kominn og sestur á ráðherrabekkinn og alger óþarfi að gera að því skóna að hann hafi ekki þekkingu á þeim málum sem eru til umræðu. Honum getur ekki farnast verr í umræðu hér en hæstv. fjármálaráðherra tókst í morgun, sem fór með svo staðlausa stafi og bullaði svo út og suður um allt er varðaði hækkanir bóta til lífeyrisþega að það var leitun að öðru eins. Ég býð hæstv. utanríkisráðherra velkominn og er sannfærður um að hann getur ekki verið með eins mikinn vitleysisgang og hæstv. fjármálaráðherra var með hér í morgun, sama hversu mikið hann reynir.