145. löggjafarþing — 55. fundur,  15. des. 2015.

orð þingmanns -- lengd þingfunda.

[10:39]
Horfa

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ástandið í þinginu núna er algjörlega í boði þingforsetanna því að stífni eykur stífni og þögn og þegjandaháttur þegar ekki eru gefnar upplýsingar um hvað fram undan sé er ekki til að bæta starfsandann í þessu húsi. Það er með öðrum orðum verið að búa til vandamál með óbilgirni og þumbaragangi algjörlega að ástæðulausu. Þess vegna setur þingið niður við þetta. Ég hafna því algjörlega að stjórnarandstaðan beri ábyrgð á ástandinu í þessu húsi núna. Þingforustan á það algjörlega skuldlaust og forsetarnir sem sitja hér, já, eins og steinrunnin nátttröll á stóli.