145. löggjafarþing — 55. fundur,  15. des. 2015.

orð þingmanns -- lengd þingfunda.

[10:41]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Eins og forseta er kunnugt sem og mjög mörgum þingmönnum sem ég talaði við, skrifstofustjóra þingsins líka, leið mér mjög illa þegar ég sat við hliðina á Jóni Gunnarssyni og gerði allt sem ég gat til að fá að vera flutt. Mig langaði oft ekki í vinnuna því að mér leið svo illa við hliðina á þessum manni, svo það sé sagt. Það vita margir. Ég hafði fengið það í gegn hjá skrifstofustjóra Alþingis að ég mætti flytja mig ef ég fyndi einhvern annan sem vildi sitja við hliðina á hv. þm. Jóni Gunnarssyni og ekki einn einasti þingmaður vildi gera svo.