145. löggjafarþing — 55. fundur,  15. des. 2015.

orð þingmanns -- lengd þingfunda.

[10:42]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Ja, hér hrópaði hv. þm. Össur Skarphéðinsson: Jú, ég hefði verið til í að sitja við hliðina á Jóni Gunnarssyni en ég var aldrei spurður.

Nóg um það, ég ætla ekki að elta ólar við þetta.

Aðeins varðandi ummæli mín um Björk Guðmundsdóttur sem virðast hafa farið fyrir brjóstið á mörgum. Þau eru til komin vegna ummæla Bjarkar um forsætisráðherra og fjármálaráðherra þar sem hún kallar þá sveitalubba sem vilja útmá hálendi Íslands. Af því tilefni sagði ég að ég skyldi fúslega viðurkenna að ég botnaði ekkert í þessari konu, þingið væri örugglega ekki verra ef það væru fleiri með hugsunarhátt sveitamannsins. Niðurstaða loftslagsráðstefnunnar hvetur okkur til að nýta af skynsemi endurnýjun orkuauðlinda landsins til aukinnar verðmætasköpunar. Nýting þeirra mun skapa traustan grunn að íslensku samfélagi, tækifæri til að gera svo miklu betur á mörgum sviðum. Ég reikna ekki með að Björk leggi sín lóð á þær vogarskálar. Það liggur nú fyrir að hún er andstæðingur þess, eða borgar hún skatta og gjöld hér á Íslandi? Spyr sá sem ekki veit.

Ég hef ekki hugmynd um hvort hún gerir það. Ég hef hvergi séð hana á skattskrá á lista yfir háa skattgreiðendur. Svo segi ég að hún sé frekar dauf til augnanna á bak við grímuna.

Þetta eru hin (Forseti hringir.) alvarlegu og niðrandi ummæli sem ég á að hafa viðhaft um listakonuna Björk Guðmundsdóttur sem ég ber mikla virðingu fyrir og því starfi sem hún hefur unnið fyrir okkar land á alþjóðavettvangi. (Forseti hringir.) Að hins vegar megi ekki svara þessu fólki þegar það kýs að tala niður til forsætisráðherra og fjármálaráðherra þjóðarinnar (Gripið fram í.) með þeim hætti sem hún gerir í þessu viðtali — (Gripið fram í.) við hljótum að mega svara fyrir okkur gagnvart þessu fólki. [Kliður í þingsal.]