145. löggjafarþing — 55. fundur,  15. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[12:44]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég get verið sammála hv. þingmanni um það að málaflokkur á borð við málefni útlendinga er viðkvæmur málaflokkur. Við þekkjum það til dæmis frá nágrannalöndum okkar og þeirri pólitísku stöðu sem þar er uppi, sem ekki margir hefðu séð fyrir fyrir 15–20 árum eða svo. Þar hafa orðið miklar breytingar á þeim tíma. Ég er sammála hv. þingmanni um það að einmitt af þeim sökum sé mikilvægt að hlúa vel að þeirri samstöðu sem þó hefur verið fyrir hendi hér á landi um þennan málaflokk.

En heildarsvipurinn á öllum þessum málum, hvort sem um er að ræða málefni útlendinga eða önnur mál kannski síður viðkvæm í umræðunni en mikilvæg þó, er að málafæðin, getum við sagt, er yfirgnæfandi hjá ríkisstjórninni. Hér koma nánast engin mál inn í þingið en það er verið að reyna að fara hina skemmri leið og taka ákvarðanir í gegnum fjárlög.

Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður sjái einhverjar leiðir til þess að breyta því á þinginu. Það er auðvitað enginn bragur á því að fara þessa leið og forðast þar með nauðsynlega umræðu, forðast þar með lögbundin ferli eins og t.d. í tilviki samgönguáætlunar þar sem ákveðið lögbundið ferli er fyrir hendi en við erum ekki með samgönguáætlun. Síðasta samgönguáætlun rann út árið 2012.

Það er orðið talsvert ámælisvert að hæstv. ráðherrar telji að þeir þurfi ekki að koma með mál inn í þingið og það sé hæfilegt að í gegnum fjárlög sé slett einhverjum fjármunum í tilteknar framkvæmdir eða aðgerðir án þess að það fáist eðlileg efnisleg umræðu um það í þinginu.

Mér persónulega finnst þetta vera eitthvað sem hv. forsætisnefnd ætti beinlínis að taka fyrir á fundum sínum, af því að þetta vinnulag dregur úr trúverðugleika þingsins. Það ætti að vera áhyggjuefni fyrir okkur öll.