145. löggjafarþing — 55. fundur,  15. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[12:54]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Komið hefur fram að umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir því við forstjóra Útlendingastofnunar að hann fái almennar upplýsingar um málsmeðferð og rannsókn umsókna þessara albönsku fjölskyldna varðandi það að fá mannúðarleyfi af heilbrigðisástæðum, sérstaklega vegna þess að þar eru börn annars vegar.

Mig langar að heyra aðeins frá hv. þingmanni um það mál og málsmeðferð Útlendingastofnunar. Við vitum að þetta tiltekna mál sem verið hefur mikið í umræðunni gagnvart þessum tveimur albönsku fjölskyldum er komið á borð allsherjar- og menntamálanefndar og er verið að skoða möguleika á ríkisborgararétti fyrir þessar fjölskyldur. Mér skilst að einstaklingur sem var með að minnsta kosti annan fjölskylduföðurinn í vinnu, ég þekki ekki nógu vel til aðstæðna hjá hinni fjölskyldunni, hafi sótt um ríkisborgararétt fyrir þá fjölskyldu.

Mig langar að heyra aðeins hjá hv. þingmanni um þetta. Auðvitað tökum við ákveðin mál í fangið og reynum að leysa þau með einhverjum hætti, en þetta mál hefur snert hjarta allra Íslendinga og verður ef til vill til þess að brjóta almennt niður fordóma í þessu máli sem ég held að séu til staðar.

Mig langar síðan að heyra frá hv. þingmanni um það fyrirkomulag sem Norðmenn hafa í þessum efnum og hvað þeir hafa tekið til sín marga (Forseti hringir.) flóttamenn. Þeir eru með 48 tíma reglu sem gengur út á að afgreiða ákveðin mál innan þess tímafrests.